Fylkisgarður við Alum Creek

17. júlí 2010

Í gærkvöldi fórum við í tjaldútilegu í Alum Creek State Park, sem er rétt norðan við Columbus, rétt um 40 mínútna akstur frá húsinu okkar. Það er reyndar lítil úthverfasamfélög með risastórum húsum allt í kringum þjóðgarðinn (eða fylkisgarðinn), en við sáum svo sem nokkur bændabýli einnig.

Í morgun var síðan haldið á ströndina við Alum Creek (sem reyndar rennur fram hjá húsinu okkar, en þá er áin búin að renna í gegnum stórborg og ekki lengur jafn snyrtileg). Anna og Tómas léku sér í sandinum.

Tomas IngiIMG_0250-1.jpgIMG_0247.jpgEltingaleikurIMG_0245.jpg

Úti í garði

15. júlí 2010

P1060178.JPG Meira »

Bílaverkstæði

7. júní 2010

Ég og Tómas sátum í rólegheitum á bílaverkstæðinu meðan bíllinn fór í gegnum 120.000 mílna skoðun.

Lokadagur á leikskólanum

29. maí 2010

P1040091.jpg

Tómas fór í leikskólann í síðasta sinn í gær, þetta var þó ekki formleg útskrift enda munu sumir félaga hans halda áfram í leikskólanum og fara í “Kindergarten” (ísl. 5 ára bekk) sem leikskólinn býður upp á.
Þar sem Bexleybær bíður nú í haust upp á heilsdags 5 ára bekk í fyrsta sinn, þá ákváðum við að það væri í alla staði hentugra fyrir okkur, að flytja hann í Cassingham Elementary þannig að hann yrði í skólanum með stóru systur. Við það bætist að ég (Elli) verð heima við stóran hluta sumars og því fannst okkur rétt að taka hann úr leikskólanum núna í maí og spara með því leikskólagjöld sumarsins.

Hvað um það, lokadagurinn var í gær og þegar við komum heim fékk Tómas “Spiderman”-hjól í útskriftargjöf. Við tókum nokkrar myndir af gleðinni.

P1040095.jpgP1040100.jpgP1040104.jpgP1040108.jpgP1040114.jpgP1040116.jpg

Útskrift frá Trinity Lutheran Seminary

22. maí 2010

P1040087.jpg

Fjölskyldan ásamt Marteini Lúther eftir úskrift Ella sem Master of Sacred Theology frá Trinity Lutheran Seminary í dag. Athöfnin fór vel fram og börnin hegðuðu sér með miklum sóma.

P1040085.jpg

Elli ásamt Cheryl M. Peterson sem var lesari/prófdómari meistararitgerðarinnar og Emlyn A. Ott sem var leiðbeinandi vegna ritgerðarinnar og er auk þess framkvæmdastjóri Healthy Congregations þar sem Elli hefur unnið í hlutastarfi undanfarin ár.

graduation08-10.jpg

Börnin hafa stækkað nokkuð frá því að ég útskrifaðist síðast, sumarið 2008 með meistarapróf í leikmannafræðum.

Anna á tónleikum

12. maí 2010

Í kvöld spilaði Anna Laufey með strengjasveit Bexley Schools á tónleikum í íþróttasal Bexley High School.

Ekki fleiri kennslustundir

12. maí 2010

Í dag sat ég í síðustu kennslustundinni minni í Trinity Lutheran Seminary og ef allt gengur að óskum mun ég útskrifast á laugardaginn 22. maí.

Ritgerðin mín er í yfirlestri hjá prófessornum mínum og ég mun að öllum líkindum ganga frá henni í endanlegri mynd núna um helgina. Þessi ritgerðaskrif hafa verið meira mál en ég gerði ráð fyrir, en viðfangsefni ritgerðarinnar liggja á mörkum trúfræði og starfsháttafræði, auk þess sem að ég leita í smiðju stjórnunarkenninga í viðskiptafræði til að hanna snið til árangursmælinga í kirkjustarfi.

Það að ritgerðin snertir mismunandi fræðisvið kallar á að málfar og orðanotkun sé samræmd, og greinileg, en það hefur ekki alltaf reynst auðvelt. Eins hef ég kynnst að áherslur í því hvað það er sem skiptir máli í guðfræði eru ekki endilega þær sömu á mismunandi fræðisviðum.

Það hefur líka reynt á að skrifa guðfræði fyrir prófessora sem deila ekki reynslu minni og skilningi á íslensku kirkjunni. Á stundum hef ég t.d. gert ráð fyrir einhverju sem ég er vanur frá Íslandi, sem er algjörlega framandi fyrir kennarana hér, þetta á svo sem líka við á hinn veginn, kennararnir gera ráð fyrir einhverju sem ég hef aldrei velt fyrir mér.

En hvað um það. Helgin fer að líkindum í lokafrágang og leiðréttingar og síðan lýkur náminu mínu formlega. Ég fæ síðan árs atvinnuleyfi í fyrsta lagi frá 1. júlí og líklega ekki fyrr en í ágúst.

Í öðrum fréttum er að við höfum ákveðið að Tómas Ingi hætti í leikskólanum hjá Ohio State núna í lok maí, og verði heima með mér og Önnu í sumar. Tómas byrjar síðan í Kindergarten (5 ára bekk) í Cassingham Elementary (skólinn hennar Önnu) í lok ágúst. Hann er orðinn fremur spenntur yfir því öllu, enda er Tómas duglegur að “gera heimalærdóm” eins og stóra systir.

Jenný er á leið á ráðstefnu á Spáni og verður í burtu frá 2.-13. júní.

Helstu fréttir af Önnu eru þær að hún fékk gleraugu í fyrsta sinn nú í lok apríl, byrjun maí, hefur staðið sig með miklum sóma í skólanum og hefur verið að æfa á fiðlu með strengjasveit skólans síns.

Anna stækkar

8. maí 2010

Ekki margt að segja frá

2. apríl 2010

Líklega vita flestir sem lesa hrafnar.net að Jenný og börnin eru á Íslandi um þessar mundir, meðan ég rembist við að skrifa lokaritgerð í STM-náminu mínu hér í BNA. Ég veitti því athygli rétt í þessu að mars 2010 er fyrsti mánuðurinn síðan júní 2005 þar sem það kom engin ný færsla á hrafnar.net. Ég ákvað því að skjóta inn færslu frá mér sem birtist í mars á trú.is, með vísunum á aðrar trú.is færslur frá mér um Haiti.

Ástæða þess er helst sú að flestar fréttir af okkur koma á Facebook síðurnar hjá mér og Jennýju, nú eða í einhverjum tilfellum á tvítið mitt (sem er reyndar yfirleitt á ensku). Til að bæta úr þessu að einhverju leiti hef ég sett upp tengingu hér til hliðar á þrjú síðustu tvít-inn mín.

Náð

25. mars 2010

Ég gekk inn í andyri Abiding Hope kirkjunnar í Littleton Colorado á laugardaginn var. Ég hafði flogið vestur til Colorado á föstudeginum til að hitta góða vini og sjá sýningu The Resurrection Dance Theater of Haiti. Ég hafði ætlað að sjá sýningu hópsins í Port au Prince, en vegna hamfaranna varð ekki af því. Meira »