Færslur frá september 2005

Baðdagur

30. september 2005

Í dag, 30. september, var baðdagur hjá litla kút. Hægt er að sjá nokkrar myndir á Baðdagur.

Ungbarnaeftirlitið

29. september 2005

Ungbarnaeftirlitið mætti hér í Stóragerði í morgun. Þetta hljómar eins og lögreglu aðgerð! Reyndar kallar heilsugæslan þetta ungbarnavernd, en “eftirlitið” leynist enn í nokkrum pappírum frá þeim.

Stúfur, litli kútur, snúður…

25. september 2005

Það er illt að hafa ekki nafn. Þá er maður kallaður ýmsum bjánalegum nöfnum. Anna Laufey er orðin þreytt á nafnleysi litla bróður og lagði til í gær að við myndum bara kjósa um þetta. Hún ætlaði líka að gera kórónu handa prinsinum og það verður að vera nafn á henni svo þetta ástand er [...]

Mjólk er góð

25. september 2005

Lífið hjá okkur litla kút hefur hingað til bara snúist um mjólk, ég fer bráðum að segja “muu”. Mjólkin hefur verið mjög sein í gang og ekki komið nóg ennþá þó allt stefni í rétta átt. Þessi seinagangur orsakast líklegast af því að ég hef engan skjaldkirtil en það á þó ekki að koma í [...]

GSM síminn sagði upp

25. september 2005

GSM síminn minn, Ericsson T65 sagði upp í gærkvöldi. Hann ískrar og vælir ef reynt er að nota hann. Þetta þýðir að ég þarf að fá mér nýjan síma áður en við flytjum til BNA, og því er draumur minn um iPod símann úti. Nema einhver lesandi eigi ónotaðan gamlan gemsa sem ég gæti fengið [...]

Bílar í BNA

24. september 2005

Ég er farin að velta fyrir mér hvers konar bíl við þurfum í BNA, það er ljóst að án bíls komumst við skammt. Núna er ég mest spenntur fyrir Dodge Caravan, Toyota Matrix og Ford Focus. Ford Freestyle eða Freestar og Chrysler Town&Country gætu líka verið málið en eru svolítið dýrari. Eins koma Huyndai jepplingarnir [...]

Nokkrar nýjar myndir

23. september 2005

Nú höfum við bætt við fáeinum myndum í möppu þessarar viku..

Fæddur sonur

20. september 2005

Í gær mánudaginn 19. september kl. 12:53 fæddist sonur á Landspítalanum. Hann mældist eftir fæðingu 3785 gr. eða rétt rúmar 15 merkur og 52 sm langur. Móður og barni heilsast vel, systur og pabba líka. Hægt er að skoða myndir af drengnum á hér á vefnum.

Myndir úr Hvassó

17. september 2005

Á heimasíðu Hvassaleitisskóla hafa verið settar nokkrar myndir úr 1-G, sem er bekkurinn hennar Önnu Laufeyjar.

Web-Sudoku

16. september 2005

Jenný er orðin sudoku-óð og eyðir öllum sínum tíma á www.websudoku.com.