Færslur frá nóvember 2005

Dótakassinn

28. nóvember 2005

Þegar við förum til BNA, þurfum við að endurnýja nokkuð af rafmagnstækjum og fjárfesta í öðrum sem hefur skort hingað til. Þannig er Canon ZR200 myndbandsupptökuvél á óskalistanum, Olympus Stylus 800, Canon PowerShot G6 eða Olympus SP-350 eru stafrænar myndavélar sem koma vonandi í stað fjögurra ára gömlu Canon Ixus vélarinnar minnar. Varðandi stærri hluti, [...]

Skírn Tómasar Inga

27. nóvember 2005

Tómas Ingi var skírður í almennri guðsþjónustu í dag í Grensáskirkju að viðstöddum fjölda manns. Þá var og Arnór Gauti skírður við sömu athöfn. Það var sr. Ólafur Jóhannsson sem annaðist skírnina, en þeir Guðmundur Tómas eldri og Brynjar Bragason voru skírnarvottar, en Brynjar hélt Tómasi jafnframt undir skírn. Að lokinni guðsþjónustunni buðum við vinum [...]

Vinamót Víkings

14. nóvember 2005

808 Anna Laufey tók þátt í Vinamóti Víkings í handbolta nú um helgina. Anna stóð sig eins og hetja en mótið var fyrir stelpur í 7. flokki, fæddar 1996-1997. Önnu Laufeyju og Aþenu vinkonu hennar var hins vegar boðið að koma og spila með þar sem það vantaði stelpur í lið. Í lok dags fengu [...]

Að taka bílpróf í BNA

8. nóvember 2005

Hér má finna upplýsingar um hvar hægt er að taka bílpróf í Ohio-fylki: Ohio State Highway Patrol Driver License Examination Stations.

Markpósturinn

8. nóvember 2005

SPRON vann í keppninni um markpóstinn. En fyrsta auglýsingabréfið til Tómasar Inga kom í póstinum í dag. Reyndar er bréfið stílað á Halldór Elías en þar er vakinn athygli á mikilvægi þess að börnum sé kennt að umgangast verðmæti og gildi sparnaðar strax frá fæðingu. Nú er ég kannski svona andlega þenkjandi, en ég held [...]

Tómas Andri hittir Tómas Inga

7. nóvember 2005

765 Í dag kom Tómas Andri í heimsókn með fjölskyldunni sinni, Bryndísi, Gísla Geir og Kristrúnu Lilju. Þeir nafnar Tómas Ingi og Tómas Andri náðu strax vel saman og þrátt fyrir að sá síðarnefndi hefði kippt sokknum af T. Inga, kom það ekki að sök. Hægt er að sjá myndir frá heimsókninni með því að [...]

Flugið staðfest

3. nóvember 2005

485 Í morgun gekk ég frá kaupum á flugmiðum fyrir alla fjölskylduna til Columbus Ohio. Við munum fljúga kl. 16:55, þann 26. desember, stöldrum við í Baltimore í þrjár klukkustundir og tuttugu mínútur áður en við fljúgum til Columbus. Þar er áætluð lending kl. 22:55. Þannig mun ferðalagið ekki taka nema um 6 klst . [...]

Vefsíða í breytingaferli

3. nóvember 2005

Nú strax eru nokkrar breytingar í gangi á vefsíðunni hrafnar.net. M.a. er búið að uppfæra myndakerfið og er nú notast við Gallery2 í stað Gallery1 áður. Þetta merkir að fyrst í stað eru einhverjir linkar í eldri færslum ónothæfir. Unnið er að lagfæringum.