Færslur frá desember 2005

Lútherskur

31. desember 2005

Ég fór í MicroCenter í dag til að kaupa myndbandsupptökuvél. Þar hitti ég duglegan sölumann. Sá spurði hvaðan ég kæmi og ég kynnti mig frá Íslandi. Viðbrögðin hans voru endalaus skemmtileg, enda sagði hann. “Nú þá hlýtur þú að vera lútherskur.” Ég játaði því og sagðist reyndar vera á leið í nám í Trinity Lutheran [...]

Komin

29. desember 2005

Nú erum við komin til Columbus, reyndar Bexley.

Á ferðinni

29. desember 2005

Við lögðum af stað frá Reykjavík á annan í jólum og héldum sem leið lá til Baltimore. Ferðin gekk úrvalsvel, reyndar kom í ljós að andúð Tómasar á snuðum leiddi til þess að hann fékk að drekka óvenjulega oft á leiðinni.

Farin

23. desember 2005

Nú erum við fjölskyldan endanlega farin úr íbúðinni okkar í Stóragerði, en er eftir smávegis af dóti, sem fær að vera þar til okkur tekst að selja. En þá munu einhverjir góðir ættingjar fjarlægja það sem ekki selst með íbúðinni. Síðasta heimsóknin var í dag, þegar Styrmir keypti glerskápinn úr stofunni.

Íbúðin næstum tóm

21. desember 2005

Nú er fátt eftir í íbúðinni í Stóragerði, nokkrir Billyskápar, rúmið okkar og Önnurúm, tölvan, þvottavél, þurrkari og fáeinar eftirhreitur af flutningum. Nú sitt ég að enda við að ganga frá tölvunni hennar Jennýjar – endanlega. Búin að hreinsa út allt sem eitthvað er og hún er tilbúin til nýrra starfa, hvar sem það verður.

Frágangur á lokastigi

19. desember 2005

Rétt í þessu vorum við Jenný að enda við að ganga frá síðustu kössunum á leið til BNA. Reyndar er hjólið eftir og einn kassi opinn, en við munum ljúka því á morgun. Alls eru 53 hlutir á leið í skip og verður unnið af fullum krafti við að flytja niður í sendibíl á morgun [...]

Myndir frá Jennýju ömmu

13. desember 2005

Jenný amma sendi okkur í kvöld nokkrar myndir úr skírn Tómasar Inga. Hægt er að sjá myndirnar hér.

Við erum komin með heimilisfang

12. desember 2005

Heimilisfangið okkar í BNA verður eins og hér segir: Halldór Elías Guðmundsson (eða annað nafn að eigin vali) 2192#F East Main Street Columbus Ohio 43209 USA

Hver ertu eiginlega?

11. desember 2005

Ég flutti lokaprédikun í Grensáskirkju í morgun. Nú styttist í brottför og því varð úr að Ólafur fékk mig til að prédika í kirkjunni. Þetta er sennilega í 4 eða 5 skiptið á þremur árum sem ég fæ að stíga í stólinn. Prédikunin er birt á vefnum trú.is.

Pakka, henda, pakka

10. desember 2005

Líf fjölskyldunnar þessa dagana snýst um lítið annað þessa dagana. Dótið okkar fer í skip næsta föstudag og jólaundirbúningur verður bara að bíða þangað til eftir þann dag. Í þessu ferli þurfum við að hafa í huga að það er dýrt að flytja dót milli heimsálfa og að geymslupláss á Íslandi er takmarkað.