Heimanám
31. janúar 2006Ég nefndi einhvern tímann við Jóhönnu Rósu kennarann hennar Önnu Laufeyjar í Hvassaleitisskóla að mér þætti meiri heimalærdómur í 1. bekk en ég hefði átt von á. Anna kom með lestrarblöð á hverjum degi og þurfti að reikna og skrifa vikulega í skriftarbók. Þegar leið að jólum bættist markmiðsbókin við.











