Veikindi
26. febrúar 2006Í dag eru veikindi hér á East Main Street en Jenný og Anna Laufey eru báðar með einhvers konar flensu. Þetta er sérlega óheppilegt fyrir Jennýju en núna er mikið að gera í skólanum, bæði verkefnaskil og heimapróf.
Í dag eru veikindi hér á East Main Street en Jenný og Anna Laufey eru báðar með einhvers konar flensu. Þetta er sérlega óheppilegt fyrir Jennýju en núna er mikið að gera í skólanum, bæði verkefnaskil og heimapróf.
Hér rétt vestan við okkur, hinum megin við Alumn Creek er fremur vafasamt hverfi. Það vafasamt að ég, Anna og Tómas höfum ekki enn keyrt götuna okkar, East Main Street, til vesturs. Jenný hins vegar tekur strætó þar í gegn, þá daga sem hún tekur strætó í skólann.
Sófinn kom í morgun frá Hraðsófasölunni, en reyndar ekki allur. Enn vantar miðstykkið í hornsófann okkar, en það er væntanlegt á næstu tveimur dögum, vonandi. Það tók því 31 dag að afgreiða sófann í stað lofaðs 21 dags. Þegar við svo prófuðum sófann eftir að flutningamennirnir voru farnir, virkaði ekki annað tveggja hægindasætanna.
1484 Nú hefur mér loksins tekist að gera myndakerfið þannig úr garði að það haldi utan um myndskeið. Næstu verkefni felast í því að hafa smámynd með hverju myndskeiði og finna út á hvaða formi er hentugast að hafa þau á vefnum. Fyrst í stað eru þau því flest á WindowsMediaVideo. Ef myndskeiðin virka ekki [...]
1413 Ég tók nokkrar myndar af Tómasi Inga að borða nú í vikunni. Hann var ekki lengi að komast upp á lagið með að borða graut og ekki duga minna en tvær skeiðar til að koma matnum á sinn stað. Reyndar hefur Jenný gert athugasemdir við að þegar hún komi heim sé hægt að skafa [...]
1360 Fyrstu bekkirnir í Cassingham settu á föstudaginn upp leikþátt um hringrás vatns í leikhúsi skólans (leitað er að styrktaraðila, sem fær að setja nafnið sitt á leikhúsið). Ég tók nokkrar myndir, en Anna Laufey lék sólina í verkinu. Í dag, mánudag, var síðan frí í skólanum, enda Forsetadagur. Ég, Tómas Ingi og Anna Laufey [...]
Elli skellti sér á kynningu fyrir hugsanlega framtíðar nemendur Trinity Lutheran Seminary í dag. Það er nokkuð algengt að skólar hér í USA bjóði umsækjendum í slíka kynningu til að auka líkur á að þeir taki boði um skólavist.
Sofa Express stendur ekki alveg undir nafni. Þrátt fyrir að lofa afhendingartíma upp á 21 dag í búðinni, þá er sófinn ekki kominn þrátt fyrir að liðnir séu 23 dagar síðan hann var pantaður.
1311 Undanfarið höfum við haft smá áhyggjur af því hvort Tómas Ingi fái nóg að borða. Þannig klárar hann allt sem sett er í pelann hans og stundum virðist hann vilja meira en mamma hans getur boðið. Af þeim sökum ákváðum við að bjóða honum barnagraut í kvöld, nú þegar hann er rétt tæpra 5 [...]
Eftir aðeins 48 daga hér í BNA gerðist það sem við höfum beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Reyndar átti ég von á að það myndi ekki gerast svo snemma, en svona er að eiga bráðgert barn.