Framhaldssagan um sófann
30. mars 2006Þegar ég las Dilbert í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag, fékk ég algjörlega nýja sýn á framhaldssöguna um sófann.
Þegar ég las Dilbert í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag, fékk ég algjörlega nýja sýn á framhaldssöguna um sófann.
Nú er dagskrá næsta sumars byrjuð að fá á sig mynd. Þetta verður líklega síðasta sumarið í nokkurn tíma sem við fjölskyldan fáum langt sumarfrí saman, áður en nám, prófatökur og verkefnavinna taka hér öll völd.
Originally uploaded by jfsl3. Ég rakst á skemmtilegar myndir frá Christ Lutheran Church á flickr.com, en það er kirkjan sem við leitumst við að fara í á sunnudögum.
1603 Eins og fram hefur komið eiga Tómas og Anna frænku sem hefur verið dugleg að kenna, sér í lagi, Önnu að skemma og brjóta. Þar sem vonda frænkan er hvergi nærri, hef ég þurft að annast þessa þjálfun hjá Tómasi. Hægt er að sjá þjálfunarmyndband með því að smella á “ikonið” með þessari færslu.
Columbus Dispatch fjallar á forsíðu Metro&State um móðurmál. Skv. blaðinu fjölgar börnum með annað móðurmál en ensku ógnarhratt í mið-Ohio.
Rétt í þessu var Anna Laufey að fara með hinum krökkunum hér í Trinity Lutheran Apartments og Dr. Karanja í skólann. En frá og með deginum í dag tökum við þátt í Carpooling með hinum foreldrunum hér á campus. Reyndar er aðeins keyrt í skólann, en stefnan er að ganga úr skólanum með hópinn. Vegna [...]
1533 Já, við mæðgurnar höfum verið í vor-fríi undanfarna viku og það var kærkomið en alltof fljótt að líða. Við höfum að mestu tekið lífinu með ró, reynt að hvíla okkur eftir nokkuð strembna byrjun á Ameríkudvöl. Ég hef notið þess að vera með fjölskyldunni og ekkert hugsað um skólann. Elli notaði tækifærið og tók [...]
Þar sem Jenný er komin með kennitölu ákváðum við í síðustu viku að færa símana okkar í áskrift enda er mjög dýrt að vera með frelsisáskriftina sem við höfum hjá Cingular.
Nú er vorfríið (e. Spring Break) byrjað hjá Jennýju og Önnu Laufeyju. Til að halda upp á það fóru þær mæðgur í GAP kids í Easton og keyptu föt á Önnu Laufeyju.
Í dag var fréttamynd og texti um Cassingham Elementary á forsíðu Metro&State fylgiblaðsins með Columbus Dispatch, en blaðið er það útbreiddasta hér í mið-Ohio. Á myndinni mátti sjá 4 stelpur í sjötta bekk halda gærdaginn hátíðlegan, en þá var PÍ-dagurinn hér í BNA.