Færslur frá apríl 2006

Út að leika

30. apríl 2006

Meðan við áttum heima í Stóragerðinu á 4. hæð, verður að segjast eins og er að Anna Laufey fór ekki oft út að leika. Garðurinn við blokkina var fremur opin, á aðra hliðina var Háaleitisbrautin og hina Stóragerði. Þá var ekki mikið annað að fara nema með foreldrunum. Ég átti ekki von á miklum breytingum [...]

Staðið við stofuborðið

28. apríl 2006

1761 Tómas Ingi ákvað áðan að standa á fætur við stofuborðið og sækja sér bæklinga til að borða. Þetta var í fyrsta sinn sem við sjáum drenginn standa á fætur annars staðar en í rúminu sínu. 1757 Við hjónin ákváðum að hinkra við og sjá hvort og hvernig Tómas myndi koma sér úr stöðunni við [...]

Aftur til BNA

26. apríl 2006

Ég gekk frá bókun með Icelandair í gær fyrir fjölskylduna frá Íslandi 10. ágúst og keypti á sama tíma miða til Íslands á ný sunnudaginn 17. desember, þar sem það var 100.210 krónum dýrara að kaupa einungis miða aðra leiðina fyrir okkur fjölskylduna. Ég efast hins vegar um að desembermiðinn verði nýttur. Nú er hins [...]

Svangur

25. apríl 2006

1740 Tómas Ingi var eitthvað svangur í morgun og meðan ég vaskaði upp, fékk hann sér Cheerios. Ég tók pakkann og gekk frá honum á sinn stað og fór því næst í símann. Þegar ég leit á drenginn hafði honum tekist að fá sér meira að borða.

Skriðtækni

24. apríl 2006

1738 Það tók Tómas Inga ekki langan tíma að ná fullum tökum á fjögurra fóta skriði, þegar hann loks ákvað að fara á hnén, en draga sig ekki áfram á annarri hönd. Nú er hann sem sé kominn á fullt skrið og fátt sem stoppar drenginn.

Vísindakonan

21. apríl 2006

1728 Tumi gaf Önnu Laufeyju, þegar hann kom í heimsókn, lítið vísinda-”kit” með rafmagnsvírum, rafhlöðu-orkugjafa, ljósdíóðum og hljóðgjafa. Anna Laufey gerði nokkrar tilraunir í kvöld, m.a. setti hún saman þjófavarnarkerfi og læddi undir útidyramottuna þegar ég fór út með ruslið. Þegar ég svo kom inn og steig á mottuna byrjaði að ýla.

Flugvélaframleiðendur, gamlir menn og Tumi

21. apríl 2006

1712 Ég og Tómas fórum með Tuma í Flugsafn bandaríska flughersins í Dayton í gær. En þangað eru sendar eintök af öllum flugvélum sem flugherinn notar. Á safninu eru um 300 vélar og flugskeyti til sýnis. Það virðist vera ljóst þegar gengið er um safnið að Kóreustríðið virðist hafa verið gósentíð flugvélagerðarmanna, en óhemjufjöldi mismunandi [...]

Að gefa skilaboð

19. apríl 2006

Tómas Ingi var ekki of ánægður með foreldra sína í gærkvöldi, þriðjudagskvöld, þegar hann var settur í rúmið. Í mótmælaskini við þessa ákvörðun greip hann í rimlana á rúminu og stóð upp.

Tumi mættur

18. apríl 2006

1681 Bragi og Baldur flugu heim á leið héðan frá Columbus á laugardaginn, en þess var ekki lengi að bíða að nýr gestur kæmi við. Tumi bróðir kom í dag og verður fram á föstudag. Hann ákvað reyndar að gista á hóteli, en vonandi náum við að sýna honum sitthvað meðan hann staldrar við. — [...]

Föstudagurinn langi

14. apríl 2006

1642 Þetta árið var föstudagurinn langi með mjög óvenjulegu sniði hér hjá okkur í Bexleybæ. Enda dagurinn frídagur hjá fæstum í BNA, þó reyndar Cassingham Elementary School hafi verið lokaður.