Færslur frá maí 2006

The Tooth Fairy

31. maí 2006

Þegar ég hugðist svæfa Önnu Laufeyju í gær,sýndi hún mér undir koddann sinn, þar var ekkert. Hún leit á mig og sagði að þetta hefði verið svona í tvo daga, lyfti upp lítilli tönn og sagði mér að ef ekkert gerðist í nótt myndi hún hætta að trúa á The Tooth Fairy hér í BNA. [...]

Viðgerð

30. maí 2006

Bíllinn okkar fór í dag í heimsókn til Ricart og var þar tekinn og grandskoðaður, enda komið að 60.000 mílna markinu. Skipt var um tímareim og fleiri reimar sem ég kann ekki að nefna.

Minningardags-helgi

28. maí 2006

Nú er þriggja daga helgi hér í Ameríku.  Mánudagurinn er frídagur, “Memorial Day” en þá minnast Bandaríkjamenn falinna hermanna.  Þessi helgi er mikil ferðalaga helgi, en nú er því spáð að fólk fari styttra en venjulega sökum hás bensínverðs.  (Hér kostar gallonið um 2.70 dollara sem samsvarar um 50 kr á lítrann.)

Brids kvöld

28. maí 2006

Mér og Önnu Laufeyju var boðið í mat og brids í gærkvöldi hjá Shannon og fjölskyldu hennar.  Shannon er þriðja árs tölfræði nemi (fyrrum stærðfræðinemi) og kennir sama kúrs og ég.  Á mánudagskvöldið var, hittist allur kennarahópurinn til að fara yfir nokkur hundruð miðannarpróf.  Á slíkum yfirferðar-kvöldum splæsir deildin á okkur pizzum og mikið er spjallað.  

Fylgst með kosningasjónvarpi

27. maí 2006

Nú sitjum við fjölskyldan og horfum á kosningasjónvarp RÚV í næstum beinni útsendingu. Reyndar er myndin frosinn á Birni Inga núna, en hljóðið virkar fínt.

Góðmennið ég

24. maí 2006

Ég skrapp áðan út í Kroger, eins og ég geri stundum á kvöldin. Þegar ég var búin að fylla körfuna með vatni á flöskum og barnamat í krukkum fór ég eins og lög gera ráð fyrir að kassanum í búðinni. Það voru bara tveir kassar opnir og fremur löng röð við þá báða svo ég [...]

Mengað kranavatn

24. maí 2006

Það var í fréttum í gærkvöldi að eitthvert efni í kranavatninu í vesturhluta Columbus væri yfir viðmiðunarmörkum og börnum undir 6 mánaða væri ráðlagt að drekka aðeins flöskuvatn.

Ökuskírteini

23. maí 2006

Ég fékk langtímaökuskírteini hjá BMV hér í Ohio í dag. Ég var mættur í verklega hluta ökuprófsins um kl. 8:00 í morgun og það var pínu kómískt að mæta þangað akandi.

Gullna liðið vann

21. maí 2006

Í fyrsta skipti á þessu vori tókst Gullna liðinu í Bexley Old Boys/girls að sigra knattspyrnuleik. Það var þó ekki sársaukalaust fyrir mig, en ég lenti í því að togna illa á vinstra læri þegar ég var að skokka á eftir boltanum og fylgja því eftir að hann færi út af. Ég ligg því núna [...]

Veikindi loksins yfirstaðin

19. maí 2006

Var að fá smá áfall, það er meira en mánuður síðan ég tjáði mig síðast á þessari síðu. Sem betur fer á ég góðan mann sem sér um að flytja fréttir. Ég hef verið á kafi í skólanum, er í næstum helmingi fleiri einingum en á síðustu önn. Ég sá fram á að verða alltof [...]