Færslur frá ágúst 2006

Myndsamskipti

28. ágúst 2006

Ný útgáfa AIM Triton býður upp á frábær myndsamskipti (video-chat) á milli Macintosh og PC. En AIM fyrir PC og iChat fyrir Mac virka saman. Notendanafnið mitt á AIM er halldorelias (at) mac.com og notendanafn Jennýjar er jennybrynjars.

Eplakaka

27. ágúst 2006

Stórtíðindi héðan frá Aðalstræti í Kólumbus: Kitchen Aid hrærivélin var notuð í fyrsta sinn. Ég keypti þessa vél í vorfríinu í mars og hafði auðvitað stórar hugmyndir um notagildi. Svo byrjaði önnur önn og hrærivélin fékk að dúsa í óopnuðum kassanum.

Á leikvellinum

26. ágúst 2006

Ég og Tómas kíktum út á áðan og lékum okkur á leikvellinum hérna úti. Ég tók nokkur myndskeið af drengnum m.a. þetta hér: Tómas á leikvellinum (1,8MB).

Anna bloggar

24. ágúst 2006

Sjálfstæðisbarátta Önnu Laufeyjar er mikil þessa dagana og hún hefur tekið upp eigið blogg, hrafnar.net/anna. Þegar færslur birtast þar mun ég láta vita hér. En fyrsta færslan er komin.

Ég er byrjuð í skólanum

24. ágúst 2006

Skólinn byrjar klukkan 8:35 en skólinn er búin klukkan 15:10. Krakkarnir í bekknum heita Max, Emma G., Joey E., Addy, Abbie, Andrew I., Andrew S., Parker, Peter, Jack, Kyle, Anna L. H., Rose, Joey G., Ashley, Emma O., Sabrina, Lindsay, Adison og síðan eru fjórir aðrir sem ég man ekki hvað heita. Kennarinn minn heitir [...]

Myndir frá Íslandsferð og fleiru

20. ágúst 2006

2353Nú hef ég sett inn myndir frá ferð fjölskyldunnar til Íslands í sumar. Þarna má sjá myndir úr sumarbústaðaferð saumó, nokkrar fínar af Katrínu Heklu og Kristrúnu Lilju ásamt hinu og þessu sem varð á leið og okkar. Myndirnar mínar úr 6. flokki í Vatnaskógi eru hins vegar einvörðungu á KFUM og KFUK vefnum og [...]

Vefsíðan mín / my webpage

18. ágúst 2006

Þetta er vefsíðan mín. Hér get ég safnað saman upplýsingum um skemmtilegar heimasíður. This is my webpage. Here I will collect informations about interesting webpages.

Stöðvuð af lögreglunni

15. ágúst 2006

Það hlaut svo sem að koma að því að eitthvert okkar útlendinganna lenti í lögreglunni hér í Bexley. Jenný fór snemma í morgun í skólann til að læra og upp úr hádegi fór ég síðan í gönguferð með börnin, Tómas í kerrunni og Önnu Laufeyju á hjólinu.

Tómas gengur

12. ágúst 2006

Það tók Tómas ekki margar klukkustundir að byrja að ganga hér í BNA. En núna í kvöld fór hann að ganga á milli húsgagna og fólks af varfærni. Ég og Anna náðum nokkrum myndskeiðum og létum tölvuna hennar Jennýjar klippa þau saman fyrir okkur. Tómas gengur í BNA (7mb á wmv-formi).

Komin heim

11. ágúst 2006

Nú erum við loksins komin heim eftir nærri tveggja mánaða ferðalag með viðkomu í Lakewood í New Jersey og Vatnaskógi í Svínadal svo tveir ólíkir viðkomustaðir séu nefndir.