Færslur frá september 2006

Go CAP

30. september 2006

Þar sem Jenný er í Q1 prófinu í allan dag, þá ákvað ég að brjóta upp daginn með því að fara með krakkana út á bókasafnið í Bexley. Þar er leikhorn fyrir smábörn og Anna gat valið sér bækur. Á leiðinni út á safn, sá ég að mikil dagskrá var í/við Capital University.

Nenni ekki að læra meira

29. september 2006

QI prófið er á morgun en ég nenni bara alls ekki að læra meira fyrir þetta próf. Ég er búin að vera á fullu síðasta mánuðinn og búin að fá nóg. Kominn tími til að snúa sér að einhverju öðru! Ég ætla bara að slappa af það sem eftir er dags og fara snemma að [...]

Frétt af Önnu

26. september 2006

Anna Laufey hefur sett nýja færslu á vefsíðuna sína, hrafnar.net/anna.

Allt sem ég geri í skólanum

26. september 2006

Nú er ég búin að vera í skólanum í meira en mánuð. Við höfum gert alskonar verkefni, eins og animal adaptation (aðlögun dýra að umhverfi sínu), tooth story (tannsaga), math book (reikningsbók), journal (annál), ice cream with stories (sagnaís), Arthur story (sögu um Arthur), Guiding Reading folder (upplýsingar um skólalestur), What is math? (Hvað er [...]

OSU komið af stað

21. september 2006

Jæja, ég byrjaði í skólanum í gær. Ég er í þremur kúrsum. Í gær fór ég í líkindafræði, þar verður farið í stærðfræðilegan grunn líkindafræðinnar með mál-og tegurfræði. Mér sýnist (og vona) að þetta verði heldur skemmtilegra en Raunfallagreining II sem ég tók 1998 (kasólétt). En auðvelt verður það ekki.

Tómas á afmæli

19. september 2006

Nú er allt í fullum gangi í Bexleybæ. Tómas byrjaði á leikskólanum í gær og grét þegar Jenný kom með hann og hljóp grátandi á móti henni þegar hún sótti hann. Hann grét nú víst ekki mikið þess á milli.

Fánafótbolti, tennis og knattspyrna

11. september 2006

Íþróttaiðkun fjölskyldunnar er að ná nýjum hæðum þessa daganna. Jenný byrjaði í tennis í dag og ég mætti á fyrstu æfinguna í fánafótbolta, sem er hófsamari útgáfan af amerískum fótbolta. En skólinn minn, Trinity Lutheran Seminary, er núverandi “guðfræðideildameistari” í íþróttinni og handhafi “The Luther Bowl”.

Go Bucks!

9. september 2006

Nú rétt í þessu var skólinn minn (OSU) að mala Texas í Amerískum fótbolta, 24 stig gegn 7. OSU er efst á styrkleikalista háskólaliða í Amerískum fótbolta og hefur nú styrkt stöðu sína enn frekar því Texas er númer tvö. Hér snýst allt um háskólaboltann á laugardögum, ekki hægt að láta þetta fram hjá sér [...]

Myndir frá BNA

9. september 2006

Ég uppgötvaði það áðan að engar myndir hafa verið settar inn frá BNA síðan við komum hingað á ný. Ég skellti inn nokkrum héðan frá heimilinu.hægt er að skoða myndir hér.

Aðlögun lokið

9. september 2006

Nú er aðlögun minni að Trinity Lutheran Seminary lokið og námið hefst á mánudaginn. Framundan eru spennandi verkefni og ljóst að margt verður öðruvísi þegar við öll erum byrjuð í skóla.