Færslur frá október 2006

Sitja saman og hósta

30. október 2006

Ég og Tómas sitjum saman heima, hóstum í kór og horfum á Dýrin í Hálsaskógi. Tómas er búin að vera lasinn síðan á fimmtudaginn, en virðist allur vera að koma til. Ég hins vegar slappaðist á föstudaginn, en hef samt sem áður náð að fara í tvö Halloween-partí með Önnu Laufeyju um helgina og skrifað [...]

Anna og Tarantino

28. október 2006

Það eru eitthvað að mýkjast reglurnar á heimilinu. Núna eru Anna og Tómas að horfa á kvikmynd þar sem uppáhaldsleikstjóri Guðrúnar Laufeyjar, Quantin Tarantino leikur lítið hlutverk.

Boo at the Zoo

22. október 2006

2528 Nú eru ekki nema rétt um 9 dagar í Hallowen þannig að við erum komin á fullt í Hrekkjavökudagskránni. Í dag voru búningar barnanna prufukeyrðir á hrekkjavökudagskrá dýragarðsins. Það var reyndar fremur kalt en við sluppum þó við rigningu. Myndir dagsins eru hér.

Hausthátíð

20. október 2006

2511 Ég og Anna Laufey skruppum á Hausthátíð við Jeffrey Mansion í kvöld eftir að hún kom úr Superman-afmæli hjá Elijah sem býr hér á Campus. Það var búið að kveikja varðeld á lóðinni við setrið, töframaður sýndi listir sínar og boðið var upp á ferð í opinni kerru um norðurhluta Bexley svo sitthvað sé [...]

Tumi og Jenný í Boston

14. október 2006

Það er framundan rólegur dagur í dag hjá mér og krökkunum. Eins og einhverjir vita fór Jenný eldsnemma á fimmtudagsmorgun á saumaklúbbsfund í Boston, sem stendur fram á sunnudagskvöld. Þá var Tumi á ráðstefnu hér í Columbus frá mánudegi og þangað til í morgun að hann fór til Boston.

Tómas farinn að tjá sig

10. október 2006

Þegar ég sótti Tómas Inga í dag sagði Kim fóstra mér að Tómas hefði sagt “Sarah” við hana Söru vinkonu sína í leikskólanum. Þetta er fyrsta sinn sem hann ávarpar nokkra manneskju með nafni, hann hefur ekki einu sinni sagt mamma við mig ennþá (já, ég er pínu abbó!).

YEAH!!!

10. október 2006

Í dag var bréf í pósthólfinu mínu í skólanum: Ms. Jenny Brynjarsdottir Department of Statistics CAMPUS

Rjómasúkkulaði

7. október 2006

Í dag var fjölskyldudagur eftir hádegi. Við ákváðum nefnilega að fara saman og leggja stund á uppáhaldstómstundaiðju Ameríkana, að fara í búðir.

Hræðilegur dagur

5. október 2006

Önnu Laufeyju fannst dagurinn í gær verulega hræðilegur en hann byrjaði samt ágætlega. Allir fóru í skólann í góðu veðri og allt leit vel út. Anna kom úr skólanum um kl. 15:30 og ég fór með henni í tennis sem hófst kl. 16:00. Tennisæfingin gekk vel framan af og kl. 16:30 sagði tenniskennarinn krökkunum að [...]

Prófið yfirstaðið

1. október 2006

Já, allt tekur einhverntíman enda. Ég er ósköp fegin að þetta er búið. Mér gekk að vísu ekki alveg jafnvel og ég vonaðist eftir. Ég lenti í tímahraki og allskyns ógöngum í nokkrum dæmum. Held þó ég eigi séns á að ná PhD stigi. Það eru semsagt þrír möguleikar, að ná Phd stigi (sem þarf [...]