Færslur frá desember 2006

Krakkasafnsferð

28. desember 2006

Við fjölskyldan lögðum snemma í morgun í langferð. Fyrsti viðkomustaður eftir þriggja klukkustunda akstur var Krakkasafnið í Pittsburgh (Children’s Museum of Pittsburgh).

Jólastemmning

24. desember 2006

2575Það tilheyrir á jólunum að gera allt fínt, m.a. að strauja jóladúkinn sem við fengum í brúðkaupsgjöf fyrir rúmlega 10 árum. Tónlistin er enn á vegum Gunnars Gunnarssonar. Jenný straujar jóladúkinn, QuickTime form, tæpt 1MB.

Hátíð í bæ

24. desember 2006

2569Anna Laufey tók að sér að skreyta jólatré fjölskyldunnar í gær. Myndbandsupptökuvélin var notuð til að ná fram stemmningunni. Gunnari Gunnarssyni er þakkaður undirleikurinn. Myndband af Önnu Laufeyju á Þorláksmessukvöld, að skreyta jólatré. QuickTime-format 1,9MB.

Farðu að sofa

24. desember 2006

Við förum í kvöld, Þorláksmessu, í Easton Towne Center upplifðum jólastemmninguna, fórum í stutta ferð í hestvagni, keyptum kakó og kökur, fengum okkur ís og höfðum það gaman saman. Við komum ekki heim fyrr en rétt fyrir 23 og því komið langt fram yfir háttatíma Tómasar. Þegar ég hins vegar setti hann í rúmið var [...]

A og P

15. desember 2006

Núna eru einkunnir fyrir Önnu, mig og Jennýju komnar í hús. Tómas er í árskerfi, þannig að hans einkunn er gefinn árlega.

Alþjóðleg jól

12. desember 2006

Við Anna Laufey höfum mikið verið að velta fyrir okkur jólasveinum og Santa Claus undanfarna daga. Við vorum til dæmis ekki alveg vissar um hvort Íslensku jólasveinarnir kæmu til Ameríku að gefa í skóinn.

Nú halda hliðin ekki lengur

11. desember 2006

Þegar við komum heim frá Íslandi í haust varð okkur ljóst að hreyfigeta Tómasar Inga hafði stóraukist síðan við yfirgáfum íbúðina. Það leið t.d. ekki nema vika þar til Tómas var farinn að labba um allt. Við brugðumst við þessu með því að setja upp hlið á tveimur stöðum á neðri hæðinni, eitt svo hann [...]

Krókódílakjöt og hryllingssögur

10. desember 2006

Elli sendi mér SMS í gærkvöldi, sagðist vera að borða krókódílakjöt. Ferðin hefur þó haft dýpri áhrif á hann en framandi réttir geta gert. Hann hefur skrifað aðeins um upplifun sína á annálinn sinn.

Prófin búin og mamma farin

10. desember 2006

Þessi önn í skólanum var frekar strembin. Fyrstu einu og hálfu vikuna lærði ég bara fyrir Q1 prófið, svo ekki byrjaði önnin vel. Þegar ég var við það að ná upp dampi skellti ég mér í fjögurra daga ferð til Boston með Drífu og Bryndísi Erlu – sem var reyndar æði og andlega alveg nauðsynleg.