Alvaran tekin við
31. janúar 2007Það er óhætt að segja að skólinn hafi byrjað af krafti hjá mér nú í janúar. Ég er áfram í fjórum kúrsum hér í Trinity líkt og fyrir jól, en álagið er allt annað og meira.
Það er óhætt að segja að skólinn hafi byrjað af krafti hjá mér nú í janúar. Ég er áfram í fjórum kúrsum hér í Trinity líkt og fyrir jól, en álagið er allt annað og meira.
Það er orðið alltof langt síðan við höfum látið vita af okkur. En í stuttu máli er bara allt gott að frétta. Skólarnir eru komnir á fullt aftur og mikið að gera hjá öllum. Ég er þremur kúrsum, framhald af líkindafræðinni, fræðilegum kúrsi um punktmat og hagnýtum kúrsi í Bayes aðferðafræði. Ég er spenntust yfir [...]
Í dag héldum við upp á afmælið hennar Önnu Laufeyjar hér heima. Ég sótti Önnu Laufeyju og 6 bekkjarsystur hennar í skólann og fékk aðstoð mömmu Meredith við að keyra þær hingað heim. Við höfðum reyndar planað að ganga með hópinn, en þar sem það leit út fyrir hugsanlega rigningu, þá ákváðum við að keyra.
Árið 2006 endaði ekki vel fyrir iBook-tölvuna mína. En seinnipartinn í gær, lokaði Tómas Ingi tölvunni minni og heyrnartólin sem fylgdu iPod-inum mínum lentu á milli lyklaborðsins og skjásins, sem brotnaði.