Stutt kynning
31. mars 2007Anna Laufey fór á svið með öðrum í öðrum bekk og kynnti verkefni sitt um Pochahontas í þremur setningum á föstudaginn. Viðstaddir voru allir nemendur skólans, kennarar og foreldrar. Myndbandsupptaka frá kynningunni
Anna Laufey fór á svið með öðrum í öðrum bekk og kynnti verkefni sitt um Pochahontas í þremur setningum á föstudaginn. Viðstaddir voru allir nemendur skólans, kennarar og foreldrar. Myndbandsupptaka frá kynningunni
Ég vil benda á þessa frétt á mbl í dag. Þar segir meðal annars Örnólfur Thorsson forsetaritari sagði að forsetinn myndi dvelja hjá Dorrit fram á sunnudag og halda síðan til Columbus í Ohio þar sem hann flytur fyrirlestur og síðan í Harvard-háskóla Massachusetts áður en haldið verður heim á leið á miðvikudaginn. Já Forsetinn [...]
Síðustu tveir dagar hafa verið miklir verslunardagar hjá fjölskyldunni. Eftir að “sumarið” kom er mikil þörf á hjóli fyrir mig, þannig að öll fjölskyldan geti farið saman að hjóla. Eins tapaði Jenný gemsanum sínum síðustu helgi og því þurfti að festa kaup á nýjum síma og fá nýtt SIM-kort með símanúmerinu hennar. Þá höfum við [...]
Nú eru allar einkunnir komnar inn frá liðnu misseri, Jenný fékk A í öllu og ég P, þannig að þetta gengur með ágætum. Nú hef ég lokið 20 semester-einingum af þeim 56 sem ég þarf að klára til að útskrifast sem MALM. Ég er eins og stendur í 10 semester einingum, geri ráð fyrir að [...]
1776Meðan Binni var hérna lærði Tómas Ingi töluvert af óæskilegri hegðun. Þannig náði hann að hrista hliðið sem átti að koma í veg fyrir að hann kæmist í stigann, þannig að það var stöðugt laust. Við tókum því hliðið niður, þannig að nú fer Tómas hvert sem hann vill, nema í kjallarann og eldhúsið. Þá [...]
2711 Nú er Pabbi búinn að vera hjá okkur í rúma viku og komið að brottfarardegi. Við Anna Laufey erum enn í vorfríi en Elli byrjaði í skólanum á þriðjudaginn. Þetta hefur verið alveg yndislegt frí, við höfum aðallega slappað af. Á Laugardaginn drifum við okkur út úr bænum og keyrðum til Cincinnati. Við fórum [...]
2640 Í dag hélt vorið innreið sína hingað til Columbus á mjög sýnilegan hátt, enda hófst vorfríið mitt í dag. Þannig var ríflega 20 stiga hiti á celsíus seinnipartinn, sól og blíða. Jenný missti reyndar af þessu þar sem hún var að ljúka við verkefni og þurfti að sitja yfir prófi kl. 17. Ég og [...]
Ég hef tekið við veikindunum í fjölskyldunni. Hef verið stífluð og ómöguleg síðan á fimmtudag, var verst í gær en þá var ég líka með 38 stiga hita. Þetta er ekki besti tíminn til að veikjast því prófa vikan byrjaði í dag. Ég var í erfiðu prófi í morgun sem fór betur en á horfðist.
Elli og krakkarnir gáfu mér í afmælisgjöf Hringadróttinsögu og Hobbitann í uppfærslu BBC fyrir útvarp. Hringadróttinsaga er á 13 geisladiskun en Hobbitinn á 5. Ég var auðvitað yfir mig ánægð (enda hafði ég gefið sterkar vísbendingar um að mig langaði í þetta).
Ég fór á hjúkrunarfræðingavaktina í morgun í skólanum minum og niðurstaða vegna litla fingurs er komin. Ég er með bólgur í sinum í beinum við úlnlið og er kominn á öflugan steraskammt til að eyða bólgunni. Þetta þýðir að ég fæ aftur tilfinningu í litla putta. Ástæða þessa er líklega nýtt lyklaborð og annars konar [...]