Færslur frá ágúst 2007

Sérfræðingur

31. ágúst 2007

Ég sá á heimasíðu Healthy Congregations að starfstitill minn er sérfræðingur. Það lítur ekki illa út á ferilskránni að hafa verið Project Specialist hjá Healthy Congregations.

Knattspyrna og skýstrókahætta

26. ágúst 2007

Dagurinn í gær hófst á því að ég, Anna og Tómas fórum á Bob Evans og fengum okkur morgunmat, héldum svo í íþróttavöruverslun til að kaupa knattspyrnuútbúnað á Önnu og fórum síðan saman á knattspyrnuvellina við Easton þar sem Anna keppti með skólasystrum sínum í heiðskýru og frábæru veðri við eitthvert lið sem ég kann [...]

Hiti, raki og hægagangur

23. ágúst 2007

Ég og Tómas biðum með Önnu Laufeyju við skólann í morgun og gengum síðan sem leið lá heim með viðkomu í CVS, leið sem að öðru jöfnu tekur mig einan um 20 mínútur að labba. En í dag tók það klukkustund, við vorum svo sem ekki að flýta okkur og 26 stiga hitinn (verður 34 [...]

Anna í skólanum

22. ágúst 2007

Nú er skólinn byrjaður aftur hjá Önnu Laufeyju. Það var gaman að sjá regnhlífaher streyma að skólanum hennar í morgun, en veðrið hér er vægast sagt vott. Ég fylgdi Önnu inn í stofu. Það var augljóst að stelpan er á heimavelli í skólanum og ég dró mig í hlé, eftir að hafa reynt að hjálpa [...]

MBA innleiðing og skólinn

20. ágúst 2007

Í kvöld verður “orientation” fyrir MBA námið hérna í Capital University en ég verð í einum MBA-kúrsi í haust, sem ber heitið Organisational Behavior. Það þýðir að ég þarf að grafa upp skyrtur og snyrtileg föt, enda MBA nemarnir væntanlega mun fínni í tauinu en guðfræðinemar sem margir klæða sig eins og þeir séu nýkomnir [...]

N-nana og kar

19. ágúst 2007

Síðustu daga hafa verið mjög rólegir hér í Bexley. Jenný vinnur reyndar af kappi og undirbýr sig fyrir QII próf í lok september. Ég og börnin erum hins vegar heima og bíðum eftir að skólar hefjist. Anna var reyndar á tennisnámskeiði í síðustu viku, sem lauk með pizzaveislu og fjölskyldudagskrá á föstudagskvöld, en Tómas hefur [...]