Færslur frá september 2007

Knattspyrna

29. september 2007

3242Meðan Jenný kvaldist yfir Qualifier II prófinu í morgun, keppti Anna Laufey í knattspyrnu í CESA-deildinni hér í Columbus, en liðið hennar er skipað stúlkum sem eru flestar með henni í 3ja bekk í Cassingham. Ég og Tómas vorum á vellinum og tókum nokkrar myndir. Hægt að sjá myndir hér.

Tómas í klippingu

28. september 2007

3218 Nú rúmum tveimur árum eftir fæðingu var Tómas klipptur í fyrsta skipti. Hann var nefnilega kominn með svolítið mikið sítt að aftan. Jenný ákvað að framkvæma klippinguna og ég sá um myndatöku. Fleiri myndir af klippingunni má sjá hér.

Kvöl II

27. september 2007

Það hefur ekki heyrst frá mér lengi hér á hrafnar. Ég hef líka verið hálf utan við mig undanfarnar vikur. Þannig er að í fyrramálið og á laugardagsmorgun mun ég taka “qualifier” próf númer tvö, sem ég hef kosið að þýða “kvöl II”. Það hefur verið erfitt að einbeita sér að próflestri í sumar og [...]

Stærðfræðin hjá Önnu

23. september 2007

Ég minnist þess að þegar ég var 8 ára þá lærðum við reikning í skólanum. Við þurftum að læra margföldunartöfluna, okkur var kennt um víxlreglur í samlagningu og frádrætti og hálfum vetri var eitt í að gera okkur hæf í að draga frá tveggja stafa tölur, allt gagnlegt og spennandi. Anna Laufey lærir hins vegar [...]

Skeifan

22. september 2007

Ég og Jenný keyptum ársmiða á leiki OSU í Skeifunni (The Horse Shoe) á þessu ári. Við fórum á fyrsta leikinn í dag, en OSU valtaði yfir NorthWestern frá Illinios 58-7. Útsýnið úr sætunum myndaðist svona með símamyndavélinni minni.

Læra meira og meira

22. september 2007

Nú þegar síðara árið í MALM-náminu mínu er að byrja, hef ég hafist handa við að sækja um að komast í post-graduate eins árs viðbótarrannsóknarnám til meistaragráðu. Námið er kallað Master of Sacred Theology (STM). MALM-gráðan mín er á sviði sem er kallað Congregational Life and Leadership, en samsvarandi lína í STM-námi er kölluð Pastoral [...]

Tómas á afmæli

20. september 2007

Nokkrar ljósmyndir