Anna á sýningu
25. október 20073325Anna Laufey fór með okkur á listasýningu í Bexley High School til að sýna okkur myndina sína. Það var fremur fjölmennt á svæðinu og þegar við höfðum séð myndina hennar Önnu ákváðum við að draga okkur í hlé.
3325Anna Laufey fór með okkur á listasýningu í Bexley High School til að sýna okkur myndina sína. Það var fremur fjölmennt á svæðinu og þegar við höfðum séð myndina hennar Önnu ákváðum við að draga okkur í hlé.
Ég og Jenný ákváðum að fá fólk til að passa 2-3 laugardaga í haust og gefa þeim í staðinn miða á fótboltaleik (svipað rugby) með OSU, en liðið er nú talið það besta í háskólafótboltanum í BNA. Þrátt fyrir að leikvöllurinn taki ríflega 100.000 áhorfendur er alltaf uppselt og mjög erfitt að fá miða fyrir [...]
Ég og Jenný fórum í annað sinn á fótboltaleik með skólaliðinu í OSU. Ekki er um að ræða hefðbundinn fótbolta heldur ameríska íþrótt sem minnir fremur á rugby.
Frægðarljómi Önnu Laufeyjar heldur áfram að skína. Hún var að koma heim rétt í þessu og sagði mér að hún hefði í dag verið kosin í “Student Council” eða stúdentaráð í Cassingham Elementary. En einn fulltrúi frá hverjum bekk er í ráðinu.
Ég fékk eftirfarandi bréf í pósthólfið mitt í skólanum í gær: Dear Jenny, On behalf of the Graduate Studies and Qualifier II Examination Committees, I take pleasure in notifying you that you have passed the Qualifier II Examination. We congratulate you on your performance and wish you the best for the completion of you Ph.D. [...]
Árlega eru valin listaverk nokkurra nemenda í Bexleybæ til sýningar í Bexley High School á Bexley City School’s All District Art Show. Sýningin er opin almenningi frá 22. október til 20. nóvember. Í gær kom bréf í pósti frá Bexley City School District til The Halldorsdottir Family. Þar stendur m.a.: This exhibit is a celebration [...]
Ég komst að því í dag að einn nemandi minn í tölfræði 135 hér í OSU er hálf íslenskur! Hann á íslenska mömmu, hefur farið oft til Íslands og á fullt af ættingjum í Garðabæ. Hann talar ekki íslensku en skilur hana svo ég spjallaði aðeins við hann á íslensku og hann svaraði á ensku. [...]
3293 Jenný hefur nokkrum sinnum nefnt að það væri gaman að eiga litla myndavél sem væri fljótlegt og auðvelt að grípa í. En myndavélin mín er ekki sú handhægasta. Þar sem Jenný var í QII prófum og þurfti verðlaun fyrir og amazon.com var með útsölu á rafmagnstækjum greip ég tækifærið í síðustu viku og pantaði [...]
Þegar Jenný kom til Sullivan fjölskyldunnar í kvöld eftir tennisæfingu lá Tómas sofandi á stofugólfinu þeirra, með hita og mjög slappur. Jenný dreif hann heim og upp í rúm og ljóst að kappinn fer ekki í leikskóla á morgun. Ég er því búin að senda prófessorunum mínum bréf með tíðindum af Tómasi og upplýsingum um [...]