Færslur frá febrúar 2008

Veikindi

27. febrúar 2008

Þessa dagana keppast fjölskyldumeðlimir um að skora sem hæst á Braun ThermoScan-mælinum okkar. Tómas náði þannig 39,4 á mánudaginn með þeim afleiðingum að hann lá í móki í sófanum í stofunni meira eða minna allan daginn, hann hefur rokkað nokkuð síðan en að mestu verið í 38 eitthvað. Anna var fremur slöpp í gær, en [...]

Bilun í myndakerfi

17. febrúar 2008

Í dag þegar ég ætlaði að skrifa færslu um afmælisveisluna hjá Mr. Gee og setja inn mynd af Tómasi, Jennýju og Brutus Buckeye, virkaði myndakerfið ekki sem skyldi og í tilraun til að laga kerfið fór enn verr. Unnið er að viðgerð.

Nýtt rúm

10. febrúar 2008

Ég og Tómas Ingi fórum í gær í IKEA leiðangur til að kaupa rúm í stað rimlarúmsins sem kappinn braut. IKEA hefur að vísu ekki enn opnað í Ohio, þannig að við feðgar héldum sem leið lá til Pittsburg í Pennsylvaníu en skv. MapQuest tekur það 2 klst og 59 mínútur að keyra í IKEA. [...]

Ekki aðeins minnugur …

8. febrúar 2008

Tómas hefur ekki einvörðungu gott minni heldur er stefnufastur, ákveðinn og hefur ágæta stjórn á hreyfingum. Þannig tók hann sig til í kvöld þegar hann átti að fara að sofa og tók niður eina hlið á rimlarúminu sínu. Þetta gerði hann á mjög yfirvegaðan hátt, án þess að brjóta upp úr einni einustu spýtu og [...]

Minnugur Tómas Ingi

6. febrúar 2008

Í gær fékk ég tvær staðfestingar á því að það er ekkert að minninu hjá Tómasi Inga. Þegar Dabba heimsótti háskóla-campusinn í Janúar þá festi hún kaup á gráum jogging buxum merktum OHIO STATE og var í þeim heima við. Ég öfundaði hana mikið af þessum þægilegu buxum og í gær sló ég til og [...]