Færslur frá mars 2008

Skólinn byrjar

31. mars 2008

Nú er skólinn minn byrjaður aftur eftir vorfrí. Nú taka við síðustu tveir mánuðir MALM-námsins, sem ættu að vera fremur þægilegir enda er ég aðeins í tveimur námskeiðum, annars vegar Care of Souls og hins vegar Transformational Leadership í MTSO (Methodist Theological School of Ohio). Ég mæti tvisvar í viku í Care of Souls (mán [...]

Tómas, Elli og Anna

27. mars 2008

Jenný tók mynd af mér og börnunum rétt í þessu.

Leikið á Páskadag

24. mars 2008

Páskadagur

23. mars 2008

Vorum úti að leika í kringum hádegi. Tókum myndir og myndbönd sem birtast e.t.v. síðar.

Góð heimsókn

23. mars 2008

Síðustu daga höfum við haft góða gesti í heimsókn, þau Anton Orra, Ísabellu, Drífu og Heiðar. Við fórum í Chuck E. Cheese’s í afmæli Antons, prófuðum vatnaskemmtigarð, Jenný og Tómas tóku þau í dýragarðinn, við skoðuðum Franklin Park Conservatory, fórum fínt út að borða, ég og Heiðar skoðuðum flugvélasafn bandaríska hersins og við fórum í [...]

Vorfrí hjá Ella og Önnu

23. mars 2008

Nú er farið að síga á seinni hluta meistaranámsins míns í leikmannafræðum, en útskrift er eftir 62 daga. Í síðustu viku lauk ég námskeiði um kirkjur í öðrum og þriðja heiminum og hvernig guðfræðiiðkun í Asíu, Suður-Ameríku og Afríku hefur áhrif, og mun hafa aukin áhrif á þróun kirkjunnar á komandi árum. Ég á því [...]

Vorfrí í snjósköflum

13. mars 2008

Það er skrýið að vera í vorfríi þegar það eru stórir snjóskaflar útum allt. Snjórinn sem féll um helgina er hér sem sé ennþá þó að mikið hafi nú bráðnað og flestar götur eru orðnar auðar. Ég vona bara að við fáum ekki enn eitt kulda kastið þegar Drífa, Heiðar og börn koma í næstu [...]

Skólablogg í lok vetrar

13. mars 2008

Nú er vetrarönnin loks á enda og ég byrja í vorfríi í dag. Þessi önn var ansi strembin, ég var í þremur kúrsum og í leskúrsi með leiðbeinandanum mínum auk kennslunnar.

ljósmyndir

12. mars 2008

Ég setti nokkrar nýjar myndir inn á Flickr, meðal annars þessa sem ég tók í rafmagnsleysi sem varð hér um daginn. Blogged with the Flock Browser

Sendur heim

10. mars 2008

Ég var rétt að koma mér fyrir á kaffihúsi í morgun, þegar ég tók eftir skilaboðum á símanum mínum. Leikskólinn hans Tómasar var að reyna að ná í okkur vegna hugsanlegrar augnsýkingar hjá Tómasi. Skilaboðin voru um að sækja hann tafarlaust. Ég hélt því af stað, hringdi í Jennýju og bað hana að tala við [...]