New York ferð
29. júní 2008Það er nú kominn tími til að segja aðeins frá húsmæðraorlofinu í New York. Í stuttu máli þá var þetta frábær ferð. Hér má finna myndir frá ferðinni.
Það er nú kominn tími til að segja aðeins frá húsmæðraorlofinu í New York. Í stuttu máli þá var þetta frábær ferð. Hér má finna myndir frá ferðinni.
Hann Tómas Ingi á tvo vini sem heita Daniel. Annar þeirra er sonur Steina og Kristinar en hinn er vinur á leikskólanum. Á leiðinni í leikskólann um daginn þá spurði ég Tómas Inga hvort hann ætlaði að leika við Daniel þann daginn. Hann horfði hneykslaður á mig og sagði: “Ekki leika Dani-E-l, leika Deni-ö-l” ! [...]
Við Elli vorum á leið í háttinn þegar við urðum vör við viðvörunar bjöllur Bexley bæjar – það er semsagt óveður og hvirfilbylja viðvörun. Sjónvarps þulir sögðu að óveðrið gengi yfir Bexley kl 12:08 svo við drifum sofandi börnin niður í kjallara. Þau sofa nú bara vel, Tómas á dýnu og Anna á svefnpoka. Það [...]
Eitt af því sem ég les alltaf í “local”-blöðunum í Bexley er dagbók lögreglunnar, enda er það merkileg lesning í öllum löndum. Í blaðinu í dag var þetta m.a. sagt: A man told police someone stole his mountain bicycle, valued at $250, sometime between 12:01 and 10:20am June 15 by cutting the lock of his [...]
Undanfarna daga hef eg verid ad skoda moguleikana sem felast i simavefnotkun.
Anna Laufey fór út að leika sér rétt í þessu og eftir smá tíma kom hún hlaupandi inn og spurði hvort að hjólið mitt væri svart. Ég skyldi ekki spurninguna alveg, svo ég leit út og tók eftir að hjólið mitt var horfið en í stað þess hafði svart flottara hjól og gleraugu verið skilinn [...]
Það er búið að vera heilmikil fjölskyldudagskrá síðustu daga. Ég og börnin fórum í dýragarðinn í vikunni, á föstudaginn fórum við á Kung Fu Panda og á Fun Fest tívolí hér í Bexley og í gær var síðan fjölskyldudagur þar sem var á dagskránni að fara í Kings Island skemmtigarðinn rétt norðan við Cincinnati og [...]
Í dag var “Awards Ceremony” í skólanum hennar Önnu Laufeyjar, þar sem nemendur fá viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á margvíslegum sviðum á liðnu skólaári. Anna Laufey var einn þessara nema en hún fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í myndlistarsýningu fyrr í vetur, fyrir góða frammistöðu í “Jump for Heart”, sippuverkefninu í leikfimi og loks fyrir störf [...]
Við Elli áttum stefnumóta-kvöld á laugardaginn (börnin voru í pössun hjá Steina og Kristínu) og mér tókst að draga Ella með mér á Sex and the City. Ég átti nú inni að fara á stelpu mynd því síðast fórum við á Indiana Jones. Þessi bíó ferð var ólík öðrum að því leyti að allar konur [...]
Fyrirmyndarbörn!