Færslur frá september 2008

Jenný byrjuð í skólanum

26. september 2008

Þá er enn eitt skólaárið byrjað og ég þarf að venjast því að kallast fjórða árs nemi. Ég hef reyndar verið að vinna á fullu undanfarnar vikur bæði í mínum eigin rannsóknum og RA-vinnunni minni. Ég mun auðvitað að halda áfram að vinna í því en nú bætast við þrír kúrsar. Hér koma lýsingar á [...]

Allt í fullum gangi

24. september 2008

Nú er allt komið á fullt hér í Bexleybæ, en Jenný byrjar í skólanum í dag. Þrátt fyrir að önnin mín hafi átt að vera rólegri en fyrri annir, þá er nóg að gera sér í lagi hjá Önnu. Heimavinnan hennar í skólanum er meiri en áður, sér í lagi vegna þess að hún er [...]

Tómas Ingi er þriggja ára í dag!

19. september 2008

Við vöktum kappann með söng og pakka í morgun. Hann var nú ekki á því að vakna, breyddi bara sængina upp fyrir haus og vildi sofa meira. Þegar hann loksins fékkst til að opna augun varð hann spenntur yfir pakkanum og var þá til í að fara á fætur. Hann fékk skál og glas með [...]

Hæ hó jibbíjei og jibbíjei…

17. september 2008

…. það er komið rafmagn í húsið!

Anna Laufey farin aftur í skólann

17. september 2008

Nú er kominn þriðji dagur í rafmagnsleysi. Þetta er þó allt á réttri leið því skólinn hennar Önnu Laufeyjar fór aftur í gang í morgun. Ekki voru nú allir krakkarnir ánægðir með það . Annars má geta þess að Iphone-inn hans Ella hefur aldeilis sannað gildi sitt því hann hefur getað tékkað á skólalokunum á [...]

Líf í rafmagnsleysi

16. september 2008

Þegar von var á leyfunum af fellibylnum Ike hingað til Ohio á sunnudaginn þá var varað við sterkum vindi. Ég glotti nú bara útí annað því það var bara spáð 12-18 m/s, en reyndar allt að 28m/s í vindhviðum. Ég var meira að segja svolítið spennt að fá loksins almennilegt rok! Ég er ekkert spennt [...]

Rafmagn á skrifstofunni

15. september 2008

Ég sit nú á skrifstofunni minni og sötra latte-ið mitt, glöð að hafa rafmagn og net. Ég finn samt ekkert á netinu um það hvenær við meigum eiga von á að fá rafmagn í Bexley.

Rafmagnslaust

14. september 2008

Mikið óveður er í mið-Ohio en leyfar Ike ganga nú yfir. Það er gert ráð fyrir 12-15 m/s en reyndar allt að 38 m/s í kviðum. Eitt tréð í garðinum okkar missti risagrein rétt áðan. Greinin var á stærð við meðal stórt ísl. tré. Annars er aðalástæða þessarar færslu að segja frá því að rafmagnið [...]