Færslur frá desember 2008

Bangsímon

31. desember 2008

Eitt það mikilvægasta í Disney planinu er að mæta snemma. Þá gefst tækifæri til að fara í tæki og á sýningar áður en brjálæðið byrjar fyrir alvöru. Gestum á Disney hótelum er t.d. boðið að mæta 1 klst fyrir opnun í valda garða dag hvern, sem bónus og til að njóta sem flestra tækja. Í [...]

Epcot

30. desember 2008

Vááá!!!

28. desember 2008

Sumir náðu ekki að klára pizzusneiðina sína eftir fjörugan dag í hollywood Studios.

Fantasmic!

28. desember 2008

Bílastunt, High School Musical 3 show, Indiana Jones með full size flugvél, matur með Playhouse Disney, skrúðganga, fleiri show og jarðskjálftahristingur, mjög þreytt og hamingjusamt fólk í fjórðu röð að bíða eftir Fantasmic sýningu Mikka Músar sem hefst eftir 46 mínútur. Síðan verður farið í hvíld. Meira Disneybrjálæði á morgun í Animal Kingdom.

Uploaded – 12\28\08

28. desember 2008

Sandströnd og bensíneyðsla

27. desember 2008

Við komum að Ramada hótelinu þar sem við gistum í nótt kl 15:55 að staðartíma og höfum tekið það rólega síðan. Áður en við komum hingað stoppuðum við stutt á St Augustine strönd þar sem Anna skemmti sér konunglega við að hlaupa á sundfötunum út í Atlantshafið. Núna söfnum við kröftum til að takast á [...]

Þoka

27. desember 2008

Hér í Suður Karólína vöknuðu allir hressir og kátir eldsnemma. Við vorum komin af stað kl 7:48 að staðartíma og áttum þá um 300 mílur eftir til Orlando. Við gerum ráð fyrir að taka eitt langt strandstopp á leiðinni, ef/þegar þokunni sem er núna yfir öllu léttir. Nú kl 8:15 komum við síðan til Georgíufylkis [...]

Fyrsta næturstop

26. desember 2008

Eins og sagði í fyrri færslu gerði GPS tækið ráð fyrir að við kæmumst til Walterboro kl 18:48. Við hins vegar vissum vel að það gengi ekki eftir þar sem GPS tæki gera ekki ráð fyrir matar- og pissustoppum. Ferðin sóttist hins vegar mjög vel og um 20:30 keyrðum við framhjá afleggjaranum til Walterboro. Við [...]

Heimilislegt

26. desember 2008

Rétt í þessu keyrðum við inn í Suður Karólínu. Eins og oftsinnis áður er útvarpið stillt á NPR, að þessu sinni svæðisstöð fylkisins. Þar er nú spiluð upptaka af Enigma eftir Eldgar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Norður Karólína

26. desember 2008

Nú erum við föst í umferð utan við Charlotte. Rétt í þessu tókum við bensín í annað sinn eftir 399.4 mílna ferð. Nú kostaði áfyllingin $21.52 fyrir 13.4566 gallon. Bensíneyðslan hingað til er því 29.7 mílur/gallon. Áhugasamir geta breytt eyðslunni í evrópsku mælieininguna l/100km.