Færslur frá janúar 2009

Stærð

29. janúar 2009

Undanfarið hefur okkur virst hafa tognað verulega úr Önnu Laufeyju þannig að ég ákvað að mæla hversu há hún er. Hún reyndist vera 58 tommur eða rétt tæplega 147,5 cm.

Óveðri slotað

29. janúar 2009

Veðrið hefur róast nokkuð, en samt eru fjölmargir skólar hér í mið-Ohio en lokaðir og enn er fólk án rafmagns í dreifbýli. Það á samt ekki við um okkur hér. Skólinn hennar Önnu er opin og það sama á við um Ohio State og Trinity.

Óveður

28. janúar 2009

Hér í Bexleybæ er víst mikið óveður og varaði rafmagnsveitan við í gærkvöldi að hugsanlega gæti rafmagnið farið af nágrannabyggðum, jafnvel í nokkra daga. Rafmagnið er nú samt en hjá okkur, en hins vegar eru allir skólar lokaðir. Reyndar var Trinity Lutheran Seminary fyrsta menntastofnunin til að lýsa yfir lokun í dag en tilkynning þeirra [...]

Tómas ælupjakkur

23. janúar 2009

Þrátt fyrir að í dag sé ekki þriðjudagur ákvað Tómas að hefja daginn með stæl og æla yfir morgunmatinn sinn við fremur litla lukku föður síns. Að sjálfsögðu var maðurinn þrifinn hátt og lágt og kastað upp í rúm til mömmu sinnar. Þar reis hann fljótt á fætur og lýsti því yfir að hann væri [...]

Tómas í vetrarverkunum

22. janúar 2009

Rétt í þessu sendi Jenný mér nokkrar myndir af Tómasi þar sem hann var að skafa af bílnum í morgun.

Lúxusdagur hjá Ella og Tómasi

19. janúar 2009

Skólalokun

15. janúar 2009

Á morgun stóð til að ég kæmi í skólann hennar Önnu og ræddi við krakkana í 4. bekk um hvernig það sé að flytja milli landa, en um þessar mundir eru 4. bekkingar í Cassingham að fjalla um innflytjendur í samfélagsfræði. Ég var búin að ræða við kennarann hennar Önnu um að nota PowerPoint glærur [...]

Engar skólalokanir og ritgerðarskil

15. janúar 2009

Það rættist úr veðrinu í dag, eða öllu heldur það hefur ekki verið ofankoma. Hér er nefnilega 13 gráðu frost. Það dugði ekki til að loka skólanum hennar Önnu og miklu meira þarf til að loka OSU. Annars hef ég setið við í dag og lagt lokahönd á 24 síðna ritgerð í Kirkjufræðum, sem mun [...]

80 mínútur

14. janúar 2009

Í dag voru Jenný og Tómas 80 mínútur á leiðinni úr leikskólanum og heim, leið sem tekur yfirleitt um 14 mínútur að keyra. Það snjóaði enda í dag, alls komu niður 15 cm af snjó hér í Columbus. Næstu daga er spáð allt að 32 stiga frosti þegar tekið er tillit til vindkælingar og alls [...]

Tómas Ingi lasinn

13. janúar 2009

Tómas Ingi virðist hafa tekið upp nýjan sið á nýju ári: að fá ælupest á þriðjudögum. Fyrir viku síðan vaknaði hann ælandi og var alveg fárveikur, hélt engu niðri og mókti mest allan daginn milli þess sem hann kúgaðist. Hann hresstist þó með kvöldinu. Í morgun þegar við Tómas vorum komin út í bíl, ég [...]