Færslur frá maí 2010

Lokadagur á leikskólanum

29. maí 2010

Tómas fór í leikskólann í síðasta sinn í gær, þetta var þó ekki formleg útskrift enda munu sumir félaga hans halda áfram í leikskólanum og fara í “Kindergarten” (ísl. 5 ára bekk) sem leikskólinn býður upp á. Þar sem Bexleybær bíður nú í haust upp á heilsdags 5 ára bekk í fyrsta sinn, þá ákváðum [...]

Útskrift frá Trinity Lutheran Seminary

22. maí 2010

Fjölskyldan ásamt Marteini Lúther eftir úskrift Ella sem Master of Sacred Theology frá Trinity Lutheran Seminary í dag. Athöfnin fór vel fram og börnin hegðuðu sér með miklum sóma. Elli ásamt Cheryl M. Peterson sem var lesari/prófdómari meistararitgerðarinnar og Emlyn A. Ott sem var leiðbeinandi vegna ritgerðarinnar og er auk þess framkvæmdastjóri Healthy Congregations þar [...]

Anna á tónleikum

12. maí 2010

Í kvöld spilaði Anna Laufey með strengjasveit Bexley Schools á tónleikum í íþróttasal Bexley High School.

Ekki fleiri kennslustundir

12. maí 2010

Í dag sat ég í síðustu kennslustundinni minni í Trinity Lutheran Seminary og ef allt gengur að óskum mun ég útskrifast á laugardaginn 22. maí. Ritgerðin mín er í yfirlestri hjá prófessornum mínum og ég mun að öllum líkindum ganga frá henni í endanlegri mynd núna um helgina. Þessi ritgerðaskrif hafa verið meira mál en [...]

Anna stækkar

8. maí 2010