Mamma og Tómas
29. ágúst 2010Jenný gekk með Tómasi í skólann fyrsta daginn. Anna var á gangbrautarvakt við skólann svo ég skutlaði henni og gekk síðan til móts við þau mæðgin.
Jenný gekk með Tómasi í skólann fyrsta daginn. Anna var á gangbrautarvakt við skólann svo ég skutlaði henni og gekk síðan til móts við þau mæðgin.
Tómas hóf skólagöngu í Cassingham Elementary School á miðvikudaginn var, en hann er í það sem kallast hér í BNA, kindergarten, eða fimm ára bekkur. Fyrstu dagarnir hafa gengið rosavel. Hann hefur verið duglegur að ganga í skólann og heim aftur og þykir mjög gaman. Ekki skemmir heldur fyrir að hitta Önnu Laufeyju út í [...]
Í gærkvöldi fórum við í tjaldútilegu í Alum Creek State Park, sem er rétt norðan við Columbus, rétt um 40 mínútna akstur frá húsinu okkar. Það er reyndar lítil úthverfasamfélög með risastórum húsum allt í kringum þjóðgarðinn (eða fylkisgarðinn), en við sáum svo sem nokkur bændabýli einnig. Í morgun var síðan haldið á ströndina við [...]
Ég og Tómas sátum í rólegheitum á bílaverkstæðinu meðan bíllinn fór í gegnum 120.000 mílna skoðun.
Tómas fór í leikskólann í síðasta sinn í gær, þetta var þó ekki formleg útskrift enda munu sumir félaga hans halda áfram í leikskólanum og fara í “Kindergarten” (ísl. 5 ára bekk) sem leikskólinn býður upp á. Þar sem Bexleybær bíður nú í haust upp á heilsdags 5 ára bekk í fyrsta sinn, þá ákváðum [...]
Fjölskyldan ásamt Marteini Lúther eftir úskrift Ella sem Master of Sacred Theology frá Trinity Lutheran Seminary í dag. Athöfnin fór vel fram og börnin hegðuðu sér með miklum sóma. Elli ásamt Cheryl M. Peterson sem var lesari/prófdómari meistararitgerðarinnar og Emlyn A. Ott sem var leiðbeinandi vegna ritgerðarinnar og er auk þess framkvæmdastjóri Healthy Congregations þar [...]
Í kvöld spilaði Anna Laufey með strengjasveit Bexley Schools á tónleikum í íþróttasal Bexley High School.
Í dag sat ég í síðustu kennslustundinni minni í Trinity Lutheran Seminary og ef allt gengur að óskum mun ég útskrifast á laugardaginn 22. maí. Ritgerðin mín er í yfirlestri hjá prófessornum mínum og ég mun að öllum líkindum ganga frá henni í endanlegri mynd núna um helgina. Þessi ritgerðaskrif hafa verið meira mál en [...]