Ekki margt að segja frá

2. apríl 2010

Líklega vita flestir sem lesa hrafnar.net að Jenný og börnin eru á Íslandi um þessar mundir, meðan ég rembist við að skrifa lokaritgerð í STM-náminu mínu hér í BNA. Ég veitti því athygli rétt í þessu að mars 2010 er fyrsti mánuðurinn síðan júní 2005 þar sem það kom engin ný færsla á hrafnar.net. Ég ákvað því að skjóta inn færslu frá mér sem birtist í mars á trú.is, með vísunum á aðrar trú.is færslur frá mér um Haiti.

Ástæða þess er helst sú að flestar fréttir af okkur koma á Facebook síðurnar hjá mér og Jennýju, nú eða í einhverjum tilfellum á tvítið mitt (sem er reyndar yfirleitt á ensku). Til að bæta úr þessu að einhverju leiti hef ég sett upp tengingu hér til hliðar á þrjú síðustu tvít-inn mín.

Náð

25. mars 2010

Ég gekk inn í andyri Abiding Hope kirkjunnar í Littleton Colorado á laugardaginn var. Ég hafði flogið vestur til Colorado á föstudeginum til að hitta góða vini og sjá sýningu The Resurrection Dance Theater of Haiti. Ég hafði ætlað að sjá sýningu hópsins í Port au Prince, en vegna hamfaranna varð ekki af því. Meira »

Smá ferðayfirlit

25. febrúar 2010

Það er þónokkuð um ferðalög framundan hjá fjölskyldunni í Bexleybæ næstu vikur og mánuði.
Núna á laugardaginn ætlum við að keyra snemma morguns til Louisville í Kentucky til að hitta ræðismann Íslands. En við þurfum að fá vegabréfið hennar Önnu framlengt um ár. Jafnframt munum við nota tækifærið til að kjósa í Icesave kosningunum, ef þeim verður ekki aflýst fyrir helgi.

Næsta ferðalag verður svo 17. mars en þá heldur Jenný með Önnu og Tómas til Boston og síðan áfram til Íslands. En þau verða á Íslandi fram yfir páska.

Á meðan hyggst ég skrifa STM ritgerðina mína af miklu kappi og fara í eitt styttra ferðalag sjálfur.

Föstudagsmorgun 19. mars ætla ég að keyra sem leið liggur til Dayton í Ohio og fljúga þaðan til Denver á leið minni til Littleton. Þar mun ég vera fram á mánudagskvöld.

Ástæðan fyrir ferðalaginu til Littleton er að Resurrection Dance Theater frá Haiti verður þar með dagskrá á vegum Abiding Hope Lutheran Church og nokkur okkar sem vorum á Haiti ætlum að fara. En Resurrection Dance Theater var eitt af verkefnunum sem við ætluðum að sjá á Haiti. Þetta er að sjálfsögðu einnig frábært tækifæri til að hitta aftur þann hluta ferðahópsins sem býr í Littleton.

Tómas að hrekkjalómast

9. febrúar 2010

tómas krumpi.jpg

Sagan mín (á íslensku)

31. janúar 2010

Hótelherbergið mitt (Ljósmynd: Doug Hill)

Myndin er af hótelherberginu mínu tveimur dögum eftir skjálftann. Ég mun breyta og bæta textann eftir því sem ég rifja upp atburðarásina og segi söguna oftar. Þetta hefur ekki verið lesið yfir með tilliti til stavsedningar.

Sagan hefst þriðjudaginn 12. janúar 2010, kl. 16:50. Ég stóð í bakgarði Florita hótelsins í Jacmel á Haiti eftir að hafa svarað umræðum á Facebook. Svarið var eitthvað á þessa leið (mín þýðing): Meira »

Sagan sögð af Brad Binau

27. janúar 2010

Hér er sagan sögð af Brad Binau, prófessor við Trinity Lutheran Seminary.

Sagan af því sem gerðistUm Haiti og starf HTF

The Raw Story

26. janúar 2010

Hótelherbergið mitt - My Hotel Room (Photo: Doug Hill)

Ég ákvað að skrifa þetta á fremur hrárri ensku, ég þýði þetta kannski síðar. Myndin er af hótelherberginu mínu tveimur dögum eftir skjálftann. Ég mun breyta og bæta textann eftir því sem ég rifja upp atburðarásina og segi söguna oftar.

This text might change as I go through the story and continue to remember more and more details of what happened. The picture is of my hotel room two days after the earthquake.

It was Tuesday January 12, 2010 at 4:50pm. I stood in the Courtyard of Hotel Florita in Jacmel, Haiti and had just finished writing a response on my Facebook page. Meira »

Saga frá Haiti

26. janúar 2010

Doug Hill prestur í Abiding Hope Lutheran Church í Littleton segir ferðasöguna frá Haiti á fræðslustund í kirkjunni sunnudaginn 24. janúar. Mín útgáfa af sögunni á ensku birtist hér einhvern næstu daga. Meira »

Gleðileg jól

24. desember 2009

Fjölskyldan í Bexleybæ óskar lesendum hrafnar.net nær og fjær

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Jólaleikrit

13. desember 2009

Börnin léku í morgun í skemmtilega róttæku jólaleikriti í kirkjunni.