Ég gekk í dag frá flugmiðum til Íslands í sumar fyrir mig, Jennýju og Tómas Inga. Jenný og Tómas koma til Íslands 10. júní (lenda að morgni 11.), dvelja í tæpa viku og fljúga heim 17. júní. Ég hins vegar kem til Íslands 30. júní (lendi að morgni 1. júlí), verð í Vatnaskógi 3.-9. júlí og flýg heim um miðjan dag 10. júlí. Flugmiðinn hennar Önnu Laufeyjar er ekki frágenginn, það gerist væntanlega á morgun. Hennar plan er að fljúga með mömmu sinni og Tómasi 10. júní til Íslands og heim til BNA 10. júlí með mér.
2 thoughts on “Ferðaplanið í sumar”
Lokað er á athugasemdir.
Nú er flugmiðinn hennar Önnu frágengin líka.
Mikið hlakka ég til að sjá ykkur öll, ég fer bráðum að telja dagana,allt gott að frétta, ég er að fara út að ganga með „kellingunum“
kveðja
Alfa