Anna mæld

Þegar Anna átti að fara í skólann í morgun var hún fremur slöpp, með hor og hósta svo ég ákvað að mæla barnið. Hún reyndist vera með 100,4 gráður á Fahrenheit eða 38 gráður á Celcíus og er því heima í dag. Mér skylst að takmarkið sé að horfa á allar Harry Potter myndirnar í einni lotu.

Ég hins vegar skrapp með Tómas í leikskólann og fór á Panera Bread til að lesa yfir handrit að ritgerð um samstarf mismunandi fagfólks í hjálparstéttum, sem ég þarf að skila á miðvikudaginn en ég tók námskeið í OSU um efnið nú í haust. Þegar ég kom heim var Anna með fremur mikil læti og hoppaði meðal annars á mig. Af þeim sökum ákvað ég að mæla hana aftur og nú reyndist hún vera 57 5/8 tommur eða 146,4 cm á hæð.

2 thoughts on “Anna mæld”

  1. Ég vona að Önnu minni batni fljótt það er svo leiðinlegt að vera veikur fyrir jólin,við vorum að koma heim úr stórkostlegri ferð mjög vel heppnuð.

    kveðja

    Alfa

Lokað er á athugasemdir.