Luther Bowl

Ég fór með skólanum mínum um helgina og við tókum þátt í LutherBowl sem er árlegt flag-football mót guðfræðiskóla á austurströnd Bandaríkjannal. Mótið er haldið í Gettysburg, Pennsylvania. Að þessu sinni mættu átta skólar til leiks, fjórir lútherskir, tveir með tengsl við ensku biskupakirkjuna, einn kalvínskur auk Wesley Theological Seminary (WTS). Er óhætt að segja að mótið hafi þannig endurspeglað framtíð „mainline“ kirkjudeilda í BNA, eða alla vega leiðtoga þeirra. Hvert lið spilaði þrjá leiki eftir ákveðnu kerfi, sem leiddi til þess að eina liðið sem sigraði alla sína leiki stóð uppi sem sigurvegari.
Skólinn minn Trinity Lutheran Seminary vann mótið á síðasta ári og hafði því titil að verja.
Eftir rúmlega 8 tíma ferðalag, einn bilaðan van og gistingu á teppalögðu gólfi St. James Lutheran Church í Gettysburg, hóf Trinity Lutheran Seminary, titilvörn sína með því að gjörsigra WTS, en hluti þess liðs skilaði sér ekki á keppnisstað. Því næst var röðin komin að The Lutheran Theological Southern Seminary að lúta lægra haldi. Loks var úrslitaleikur milli Trinity Lutheran Seminary og Trinity Episcopal School for Ministry. Þrátt fyrir talsverða hörku, olnbogaskot og skurði í handlit (ég slapp þó við slíkt), tókst Trinity Lutheran að verja titilinn með 26-16 sigri yfir Pittsburgh skólanum.

Það var því glaður og sáttur hópur sem hélt heim á leið til Columbus, Ohio. Enda ekki á hverjum degi, sem maður vinnur stórmót í íþróttum. En ég er sem Austurstrandarmeistari guðfræðiskóla í flag-football árið 2006.

Ég setti nokkrar myndir frá mótinu á flickr.com fyrir samnemendur mína.