Alþjóðleg jól

Við Anna Laufey höfum mikið verið að velta fyrir okkur jólasveinum og Santa Claus undanfarna daga. Við vorum til dæmis ekki alveg vissar um hvort Íslensku jólasveinarnir kæmu til Ameríku að gefa í skóinn.
En þar sem ég fékk í skóinn þegar ég var lítil stelpa í Danmörku þá fannst mér nú líklegt að sveinarnir kæmu líka hingað hinumegin við Atlantshafið. Við ákváðum því að setja skó í gluggann í gær og settum auðvitað líka einn skó fyrir Tómas Inga. Og viti menn, Stekkjastaur blessaður kom í nótt. Anna fékk bleikar teigjur í hárið en Tómas fékk lítinn löggubíl úr tré. Reyndar fannst Önnu grunsamlegt að það stóð POLICE á bílnum en ekki “Lögregla”. Nú bíðum við bara spennt eftir honum Giljagaur.

En svo er það þessi Santa Claus. Hann kemur á sjálfa jólanóttina, setur pakka undir tré og nammi í jólasokka og fær að launum smákökur og mjólk. Við Anna Laufey erum spenntar að vita hvort þessi Ameríski kemur til okkar líka, en við verðum bara að bíða og sjá til.

Ofaná þetta bætist að við erum að lesa bókina “Ég, afi og Jóla-Stubbur” eftir Ole Lund Lirkegaard, í henni er einn kafli fyrir hvern dag í desember fram að jólum. Þar eru auðvitað nissar í aðalhlutverki svo við fáum góðan skammt af jólasveina siðum þessi jólin.

One thought on “Alþjóðleg jól”

Lokað er á athugasemdir.