Gleðilegt nýtt ár!

Við óskum fjölskyldu og vinum gleðilegs árs!

Við snæddum hátíðarkvöldverð í gærkvöldi með Öskubusku, prinsinum, stjúpunni og stjúpsystrunum. Við fórum svo aftur í Magic Kingdom og Anna Laufey hitti Mikka og Mínu mús en ég og Tómas Ingi fórum í kappaksturs bíla á meðan. Mína mús var svaka glöð að sjá Önnu Laufeyju í Mínu músar kjól. Við setjum inn myndir þegar við komum heim. Við vorum í Töfragarðinum fram yfir miðnætti og sáum magnaða flugeldasýningu. Hún byrjaði á að Skellibjalla flaug niður úr kastalanum og svo byrjuðu sprengingar allt í kringum okkur. Við vorum öll mjög ánægð með daginn og alveg svakalega þreytt eftir prógrammið síðustu daga.

Við sváfum fram eftir í morgun (til kl. 8), pökkuðum dótinu okkar í bílinn og fórum í Disney miðbæinn. Þar var verslað og strákarnir fóru í bíó. Við fórum á stað seinni part dags og erum nú komin á hótel í bænum Gainesville í Flórida. Enn eru um það bil 14 klst eftir af akstri.

4 thoughts on “Gleðilegt nýtt ár!”

  1. Gleðilegt ár frá öllum á Birkiási með þökk fyrir góðar gjafir (sem gera drengina mjög ánægða en foreldrana ….) Magnús

  2. Elli keypti líka svona bíl handa Tómasi Inga og hann var líka yfir sig kátur. Það var mikið fjör hjá okkur á aðfangadagskvöld og ég sagði einmitt við Ella að það væri örugglega tvöfalt fjör hjá ykkur 😉 .

  3. Það var þrefalt fjör inn á Striki á jóladag þegar pakkarnir voru opnaðir.
    Gleðilegt ár og góða ferð heim.
    Kveðja af Haðarstígnum

Lokað er á athugasemdir.