Við Anna Laufey höfum mikið verið að velta fyrir okkur jólasveinum og Santa Claus undanfarna daga. Við vorum til dæmis ekki alveg vissar um hvort Íslensku jólasveinarnir kæmu til Ameríku að gefa í skóinn. Halda áfram að lesa: Alþjóðleg jól
Category: 01 Fjölskyldan öll
Nú halda hliðin ekki lengur
Þegar við komum heim frá Íslandi í haust varð okkur ljóst að hreyfigeta Tómasar Inga hafði stóraukist síðan við yfirgáfum íbúðina. Það leið t.d. ekki nema vika þar til Tómas var farinn að labba um allt. Við brugðumst við þessu með því að setja upp hlið á tveimur stöðum á neðri hæðinni, eitt svo hann fari ekki í stigann og eitt til að loka af eldhúsið. Halda áfram að lesa: Nú halda hliðin ekki lengur
Krókódílakjöt og hryllingssögur
Elli sendi mér SMS í gærkvöldi, sagðist vera að borða krókódílakjöt. Ferðin hefur þó haft dýpri áhrif á hann en framandi réttir geta gert. Hann hefur skrifað aðeins um upplifun sína á annálinn sinn.
Prófin búin og mamma farin
Þessi önn í skólanum var frekar strembin. Fyrstu einu og hálfu vikuna lærði ég bara fyrir Q1 prófið, svo ekki byrjaði önnin vel. Þegar ég var við það að ná upp dampi skellti ég mér í fjögurra daga ferð til Boston með Drífu og Bryndísi Erlu – sem var reyndar æði og andlega alveg nauðsynleg. Halda áfram að lesa: Prófin búin og mamma farin
Missti allt
þad er otrulegt ad koma hingad til New Orleans og sja ad tratt fyrir ad ymislegt hafi verid lagad, ta er eydileggingin synileg alls stadar, aud hverfi, onyt hus og hruninn auglysingaskilti nu 460 dogum eftir Katrinu. Vid forum i dag til Missisippi en tar for midja Katrinar yfir. þegar vid keyrdum eftir strondinni vantadi um fjorar eda fimm husradir naest sjonum, allt farid, nema reyndar eitt og eitt hus an framhlidar og þaks sem standa eins og til ad syna hversu stor einbylishusin voru. Finu draumahus ellilifeyristeganna ekki olik husunum i Bexley ad staerd, horfin. Halda áfram að lesa: Missti allt
Styttist í New Orleans
Nú er fyrsta misserið mitt búið í skólanum. Ég á reyndar eftir að gera leiðréttingar á einni ritgerð í Gamla testamentisfræðum, þar sem kennaranum fannst vanta nokkuð upp á upplýsingar um forsendur túlkunar nokkurra Exodus lesenda. En skilafrestur er á mánudaginn. Á mánudaginn hefst líka interim-önnin í skólanum en það er 3 vikna önn, þar sem boðið er upp á hvers kyns 3 eininga námskeið, oft utan skólans. Halda áfram að lesa: Styttist í New Orleans
Fyrsti kaffisopi Tómasar
Á föstudaginn var, þegar Elli var í fánabolta-keppnisferðalaginu, fórum við Tómas Ingi í gönguferð um Bexley og enduðum á að ná í Önnu Laufeyju í skólann. Það var óvenju hlýtt í veðri (miðað við árstíma) og við ákváðum að rölta á Starbucks kaffihús á leiðinni heim að fá okkur hressingu. Anna Laufey fékk gos og m&m smáköku og Tómas Ingi fékk mjólk og bita af sítrónukökunni minni. Ég ákvað hinsvegar að fá mér frappuccino – þ.e. kaffi með fullt af mjólk og klakakrapi – mjög vinsæll sumardrykkur. Tómasi Inga fannst drykkurinn mjög spennandi, svo ég gaf honum bara sopa. Hann var svona líka ánægður með kaffisopann og leit varla við mjólkinni eftir það. Caffé Light Frappuccino sló algerlega í gegn!
Hænur eru hermikrákur
Rithöfundurinn Bruce McMillan heimsótti Cassingham Elementary School í dag. Skólastjórinn hringdi í mig í morgun og skyldi eftir skilaboð hvort mig langaði ekki að vera viðstaddur og spjalla við manninn. Svo ég mætti. Halda áfram að lesa: Hænur eru hermikrákur
Luther Bowl
Ég fór með skólanum mínum um helgina og við tókum þátt í LutherBowl sem er árlegt flag-football mót guðfræðiskóla á austurströnd Bandaríkjannal. Mótið er haldið í Gettysburg, Pennsylvania. Að þessu sinni mættu átta skólar til leiks, fjórir lútherskir, tveir með tengsl við ensku biskupakirkjuna, einn kalvínskur auk Wesley Theological Seminary (WTS). Er óhætt að segja að mótið hafi þannig endurspeglað framtíð „mainline“ kirkjudeilda í BNA, eða alla vega leiðtoga þeirra. Hvert lið spilaði þrjá leiki eftir ákveðnu kerfi, sem leiddi til þess að eina liðið sem sigraði alla sína leiki stóð uppi sem sigurvegari.
Skólinn minn Trinity Lutheran Seminary vann mótið á síðasta ári og hafði því titil að verja. Halda áfram að lesa: Luther Bowl
Nóg að gera og Tómas lasinn
Það er nóg að gera hjá okkur hér í Bexley þessa dagana, Hrekkjavöku er lokið og enn er nóg nammi eftir hjá Önnu Laufeyju, einungis tvær vikur eru eftir af önninni hjá mér og Jenný er nýbúin í miðannarprófum. Halda áfram að lesa: Nóg að gera og Tómas lasinn
Sitja saman og hósta
Ég og Tómas sitjum saman heima, hóstum í kór og horfum á Dýrin í Hálsaskógi. Tómas er búin að vera lasinn síðan á fimmtudaginn, en virðist allur vera að koma til. Ég hins vegar slappaðist á föstudaginn, en hef samt sem áður náð að fara í tvö Halloween-partí með Önnu Laufeyju um helgina og skrifað eina 10 síðna ritgerð. Ég er þó ekki viss um að gæði skrifanna hafi verið mikil að þessu sinni. Halda áfram að lesa: Sitja saman og hósta
Anna og Tarantino
Það eru eitthvað að mýkjast reglurnar á heimilinu. Núna eru Anna og Tómas að horfa á kvikmynd þar sem uppáhaldsleikstjóri Guðrúnar Laufeyjar, Quantin Tarantino leikur lítið hlutverk.
Boo at the Zoo
2528
Nú eru ekki nema rétt um 9 dagar í Hallowen þannig að við erum komin á fullt í Hrekkjavökudagskránni. Í dag voru búningar barnanna prufukeyrðir á hrekkjavökudagskrá dýragarðsins. Það var reyndar fremur kalt en við sluppum þó við rigningu.
Hausthátíð
2511
Ég og Anna Laufey skruppum á Hausthátíð við Jeffrey Mansion í kvöld eftir að hún kom úr Superman-afmæli hjá Elijah sem býr hér á Campus. Það var búið að kveikja varðeld á lóðinni við setrið, töframaður sýndi listir sínar og boðið var upp á ferð í opinni kerru um norðurhluta Bexley svo sitthvað sé nefnt.
Anna skemmti sér hið besta, þrátt fyrir skítakulda og þá staðreynd að við vorum ekki klædd í samræmi við veður.
Tumi og Jenný í Boston
Það er framundan rólegur dagur í dag hjá mér og krökkunum. Eins og einhverjir vita fór Jenný eldsnemma á fimmtudagsmorgun á saumaklúbbsfund í Boston, sem stendur fram á sunnudagskvöld. Þá var Tumi á ráðstefnu hér í Columbus frá mánudegi og þangað til í morgun að hann fór til Boston. Halda áfram að lesa: Tumi og Jenný í Boston