Nú rétt í þessu var skólinn minn (OSU) að mala Texas í Amerískum fótbolta, 24 stig gegn 7. OSU er efst á styrkleikalista háskólaliða í Amerískum fótbolta og hefur nú styrkt stöðu sína enn frekar því Texas er númer tvö. Hér snýst allt um háskólaboltann á laugardögum, ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara. Svo slær kennarahjartað nú hratt þegar einn nemandinn sést á vellinum !