Þegar ég sótti Tómas Inga í dag sagði Kim fóstra mér að Tómas hefði sagt „Sarah“ við hana Söru vinkonu sína í leikskólanum. Þetta er fyrsta sinn sem hann ávarpar nokkra manneskju með nafni, hann hefur ekki einu sinni sagt mamma við mig ennþá (já, ég er pínu abbó!).
Svo þegar við Elli töluðum um Söru og Tómas við matarborðið í kvöld fór drengurinn alveg hjá sér, hmm… greinilega alveg yfir sig skotinn í stúlkunni!
Annars segir Tómas líka „datt“ og „takk“ og „AA“ (fyrir Amen) þegar við biðjum á kvöldin. Svo bendir hann bara á það sem hann vill eða hristir hliðið í eldhúsgættinni þegar hann er svangur.
Sko minn kall!
Það var gaman að fá þennan pistil, passar vel inn í kennsluna hjá mér núna. Nemendur eru að gera verkefni um fyrstu orð barna á öðru ári! Takk fyrir þetta.
Anna amma
Minni á að Tómas Ingi sagði hátt og skýrt „afa“ þegar hann var að snúa Mumma afa í kringum sig í sumar.
kveðja
Alfa