Ónýtur fartölvuskjár

Árið 2006 endaði ekki vel fyrir iBook-tölvuna mína. En seinnipartinn í gær, lokaði Tómas Ingi tölvunni minni og heyrnartólin sem fylgdu iPod-inum mínum lentu á milli lyklaborðsins og skjásins, sem brotnaði. Það þýðir með öðrum orðum að skjárinn er ónýtur og tölvan ekki lengur nothæf sem fartölva. Nýtt ár hefst því væntanlega á verslunarleiðangri þar sem ég reyni að finna góðan og ódýran flatskjá, lyklaborð og mús til að tengja við tölvuna og nota hana sem borðtölvu eitthvað fram á þetta ár, gera má ráð fyrir að ferðin komi til með að kosta $3-400. Einnig kemur til greina að kaupa nýja MacBook en það er meiri fjárfesting og líklega betra að bíða með það um sinn.
Þetta þýðir hins vegar að tölvan mín er óaðgengileg eins og er, og óvíst hvort mér takist að redda þessu áður en skólinn byrjar.

En óháð þessu veseni, þá óskum við lesendum öllum hamingju og gleði á komandi ári.

6 thoughts on “Ónýtur fartölvuskjár”

  1. Það er búið að „redda“ þessu, en í dag 1. janúar fór ég í búð og keypti 19″ tölvuskjá, lyklaborð, USB-hub og snúrur til að breyta fartölvunni minni í borðtölvu og þannig virkar hún núna ágætlega. En ekki lengur sem fartölva þó.

  2. Hann hefur lokað þessu all kröftuglega, við þökkum kærlega fyrir góðar gjafir hér sem koma að góðum notum. Benni er gífurlega kátur í nýja Mikka Mús gallanum sínum.

  3. Já, þetta endaði ekki vel þetta árið. En skólinn minn er samt FlagFootball-meistari guðfræðiskóla á austurströndinni.

Lokað er á athugasemdir.