Sagan um rúmið

Eitt af fyrstu verkefnum okkar hér í Bexley, var að kaupa rúm. Eftir að hafa átt þetta ágæta Ragnarsrúm í 10 ár, en það var keypt haustið 1995, ákváðum við að tími þess væri liðinn. Reyndar skemmdist það strax fyrsta daginn sem það var í okkar eigu, en Guðrún L. systir mín er ekki mjög fær flutningamanneskja.
En það er útúrdúr – við fórum í lok síðasta árs í MattressFirm við W. Lane Ave og keyptum okkur KingSize Simmons rúm, sem komst með naumindum og klókindum flutningamanna upp stigann hér á 2192 E Main St. Dýrt, flott amerískt rúm í yfirstærð. Ekki viss um að Guðrún hefði ráðið við það. Strax fyrstu nóttina byrjaði Jenný að kvarta undan bakverkjum og eftir 3 daga hafði hún samband við MattressFirm og reyndi að nýta Comfort Guarantee-ið sem stelpan í búðinni hafði auglýst svo rækilega, og fá rúminu skipt. En eftir nokkur símtöl var ljóst að Comfort Guarantee var ekki virkt fyrr en eftir 30 daga, við áttum að venjast dýnunni. Síðan höfum við beðið og beðið eftir að 30 dagarnir líði. Það var síðan í dag sem við fórum af stað til að gera kröfu um nýtt rúm. Við héldum sem leið lá í MattressFirm við W. Lane Ave en það runnu á okkur tvær grímur þegar við komum að búðinni. Þar var CloseOut-sale og fátt um fína drætti innanbúðar. Stúlkan, sú sama og seldi okkur rúmið í upphafi, benti Jennýju á að hún gæti haft samband við MattressFirm í Hilliard og þeir tækju yfir skuldbindingar verslunarinnar við W. Lane, enda væri hún að loka.
Við héldum sem leið lá í Hilliard-búðina og þar tók á móti okkur ungur maður sem gerði sitt besta til að aðstoða okkur. Eftir nokkra umhugsun og rúmprófanir ákváðum við að halda okkur við Simmons, en fara í mýkra rúm. Þegar átti svo að gera upp herlegheitin sagði sölumaðurinn að hann gæti ekki sagt okkur neitt um afhendingartíma, hann yrði líklega á mánudag/þriðjudag, en búðin hefði verið rænd síðastliðna nótt og hann væri ekki með tölvutengingu við lagerinn. Þetta þýddi jafnframt að hann gat ekki tekið greiðslu á posa, en þurfti að handskrifa VISA-númerið á kortinu mínu. Nú er því ekki bara beðið eftir sófa, heldur svari frá IKEA við pöntun á húsgögnum og nýju rúmi frá MattressFirm. Reyndar átti IKEA að svara í síðasta lagi í dag, en við gefum þeim séns fram á morgun áður en við förum að hringja og leita eftir upplýsingum um hvar dótið sem við pöntuðum sé.

One thought on “Sagan um rúmið”

  1. Heyrðu þú baðst mig bara um að opna fyrir flutningagaurunum, en nei nei, ég þurfti þá að bera eftir stígum og stigum dýnu langtum þyngri en mig á móti manni sem var 1.80m. Það var bara ekki alveg að gera sig.

Lokað er á athugasemdir.