Já, allt tekur einhverntíman enda. Ég er ósköp fegin að þetta er búið. Mér gekk að vísu ekki alveg jafnvel og ég vonaðist eftir. Ég lenti í tímahraki og allskyns ógöngum í nokkrum dæmum. Held þó ég eigi séns á að ná PhD stigi. Það eru semsagt þrír möguleikar, að ná Phd stigi (sem þarf til að halda áfram með Phd námið) eða MS stigi (þá getur maður bara tekið master) eða fall. Ef árangurinn er ekki eins og maður vonast eftir má endurtaka prófið einu sinni (í janúar), en ekki oftar. Við fáum niðurstöðurnar 12 október og ég bíð bara spennt þangað til. Ég verð reyndar í Boston með Drífu og Bryndísi þennan dag, svo kannski fæ ég ekkert að vita fyrr en eftir þá ferð. Halda áfram að lesa: Prófið yfirstaðið
Author: Halldór Guðmundsson
Go CAP
Þar sem Jenný er í Q1 prófinu í allan dag, þá ákvað ég að brjóta upp daginn með því að fara með krakkana út á bókasafnið í Bexley. Þar er leikhorn fyrir smábörn og Anna gat valið sér bækur.
Á leiðinni út á safn, sá ég að mikil dagskrá var í/við Capital University. Halda áfram að lesa: Go CAP
Nenni ekki að læra meira
QI prófið er á morgun en ég nenni bara alls ekki að læra meira fyrir þetta próf. Ég er búin að vera á fullu síðasta mánuðinn og búin að fá nóg. Kominn tími til að snúa sér að einhverju öðru! Ég ætla bara að slappa af það sem eftir er dags og fara snemma að sofa.
Frétt af Önnu
Anna Laufey hefur sett nýja færslu á vefsíðuna sína, hrafnar.net/anna.
Allt sem ég geri í skólanum
Nú er ég búin að vera í skólanum í meira en mánuð. Við höfum gert alskonar verkefni, eins og animal adaptation (aðlögun dýra að umhverfi sínu), tooth story (tannsaga), math book (reikningsbók), journal (annál), ice cream with stories (sagnaís), Arthur story (sögu um Arthur), Guiding Reading folder (upplýsingar um skólalestur), What is math? (Hvað er stærðfræði?), traditions (hefðir), peek into a good book (kíktu í spennandi bók), handwriting (skriftarbók), animal questions (dýraspurningar) og Who are you? (hver ertu?).
Ég er núna að útbúa poster (veggspjald) um refi. Og við eigum að skila því miðvikudaginn 4. október.
Í dag fór pabbi að skoða allt sem ég geri í skólanum. En hann sá ekki allt.
Á næsta þriðjudag fer ég með bekknum mínum í dýragarðinn, sem heitir Columbus Zoo.
OSU komið af stað
Jæja, ég byrjaði í skólanum í gær. Ég er í þremur kúrsum. Í gær fór ég í líkindafræði, þar verður farið í stærðfræðilegan grunn líkindafræðinnar með mál-og tegurfræði. Mér sýnist (og vona) að þetta verði heldur skemmtilegra en Raunfallagreining II sem ég tók 1998 (kasólétt). En auðvelt verður það ekki. Halda áfram að lesa: OSU komið af stað
Tómas á afmæli
Nú er allt í fullum gangi í Bexleybæ. Tómas byrjaði á leikskólanum í gær og grét þegar Jenný kom með hann og hljóp grátandi á móti henni þegar hún sótti hann. Hann grét nú víst ekki mikið þess á milli. Halda áfram að lesa: Tómas á afmæli
Fánafótbolti, tennis og knattspyrna
Íþróttaiðkun fjölskyldunnar er að ná nýjum hæðum þessa daganna. Jenný byrjaði í tennis í dag og ég mætti á fyrstu æfinguna í fánafótbolta, sem er hófsamari útgáfan af amerískum fótbolta. En skólinn minn, Trinity Lutheran Seminary, er núverandi „guðfræðideildameistari“ í íþróttinni og handhafi „The Luther Bowl“. Halda áfram að lesa: Fánafótbolti, tennis og knattspyrna
Go Bucks!
Nú rétt í þessu var skólinn minn (OSU) að mala Texas í Amerískum fótbolta, 24 stig gegn 7. OSU er efst á styrkleikalista háskólaliða í Amerískum fótbolta og hefur nú styrkt stöðu sína enn frekar því Texas er númer tvö. Hér snýst allt um háskólaboltann á laugardögum, ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara. Svo slær kennarahjartað nú hratt þegar einn nemandinn sést á vellinum !
Myndir frá BNA
Ég uppgötvaði það áðan að engar myndir hafa verið settar inn frá BNA síðan við komum hingað á ný. Ég skellti inn nokkrum héðan frá heimilinu.hægt er að skoða myndir hér.
Aðlögun lokið
Nú er aðlögun minni að Trinity Lutheran Seminary lokið og námið hefst á mánudaginn. Framundan eru spennandi verkefni og ljóst að margt verður öðruvísi þegar við öll erum byrjuð í skóla. Halda áfram að lesa: Aðlögun lokið
Leikskólaviðtal, innleiðing og makasamkoma
Í dag hófst formlega dagskrá fyrir nýnema í Trinity Lutheran Seminary. Helgihald, samhristiverkefni af ýmsum toga, umræður um námslán, viðbrigði við að fara úr vinnu í nám og námsuppbyggingu voru á meðal þess sem beið mín í skólanum í morgun. Halda áfram að lesa: Leikskólaviðtal, innleiðing og makasamkoma
Dýragarður á Labor day og mikið framundan
Ég og krakkarnir skruppum í gær í dýragarðinn eftir hádegi, enda opinber frídagur hér í BNA. Það verður að segja að sjaldan höfum við séð jafnmargt fólk í dýragarðinum og í gær. Það var þó ekki nóg til að hressa dýrin við, en bæði ljónin og tígrisdýrin lágu makindaleg í sólinni allan tímann sem við dvöldumst í garðinum og virtust ekki hafa mikinn áhuga á að ganga um. Halda áfram að lesa: Dýragarður á Labor day og mikið framundan
Myndsamskipti
Ný útgáfa AIM Triton býður upp á frábær myndsamskipti (video-chat) á milli Macintosh og PC. En AIM fyrir PC og iChat fyrir Mac virka saman. Notendanafnið mitt á AIM er halldorelias (at) mac.com og notendanafn Jennýjar er jennybrynjars.
Eplakaka
Stórtíðindi héðan frá Aðalstræti í Kólumbus: Kitchen Aid hrærivélin var notuð í fyrsta sinn. Ég keypti þessa vél í vorfríinu í mars og hafði auðvitað stórar hugmyndir um notagildi. Svo byrjaði önnur önn og hrærivélin fékk að dúsa í óopnuðum kassanum. Halda áfram að lesa: Eplakaka